Dregið var í undanúrslit í SS bikarkeppni HSÍ núna í hádeginu.

Í karlaflokki taka Valsmenn á móti bikarmeisturum Hauka annars vegar, og Stjarnan og Fram eigast við hins vegar.

Í kvennaflokki taka bikarmeistarar ÍBV á móti Íslandsmeisturum Hauka, og Grótta/KR fær Stjörnuna í heimsókn.

Þetta verða mjög spennandi leikur og verður gaman að sjá hverjir mætast í úrslitunum :) Mér perónulega hefði langað að Haukar og valsmenn hefðu mæst í úrslitunum en svona getur þetta orðið!

Einnig verður gaman að fylgjast með kerlingunum því það voru jú eyjastúlkur sem að unnu Haukastelpurnar í fyrra í úrslitaleiknum í höllinni :)

Sem sagt spennandi leikir framundan í handboltanum….

Áfram Haukar!!!