Í kvöld mætast bestu lið landsins í hörkuleik um sæti í úrslitum gegn að mínum mati mun lakari andstæðingum. Ég held að Haukarnir hafi þetta á seiglunni og breiddini en það er hætt við að sjálfstraustið geti farið með okkur því verður að varast það að halda að þetta komi að sjálfum sér.

Valsmenn hafa frábært lið og eru svo sannarlega verðugir andstæðingar og frændur okkar, en með mikilli seiglu ætti þetta að hafast. En Haukarnir verða að teljast aðeins sigurstranglegri að þessu sinni.

Eitt er víst í mínum huga, þetta verður svakalegur leikur og ég býst við framlengingum, rauðum spjöldum, svitabað, öskur, trommuslætti, brjáluðum þjálfurum og áhorfendum og umfram allt 1.flokks skemmtum af hæðsta gæðaflokki, þetta má engin áhugamaður um handbolta missa af. Mætum öll og styðjum okkar lið eða bara til að skemmta okkur….

Áfram Haukar Megi betra liðið vinna……………….