Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Counter-Strike mót!

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Vegleg verðlaun? Maður hefur nú heyrt þetta áður og hlýtur þessi frasi að teljast afar teygjanlegur. Hvað er í verðlaun??? Rooste

Re: Kjaftur !

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Hvað er eiginlega að gerast með Loverana? Rooste

Re: Clan 3D hættir í CS

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Gurki, hvað þýðir gg?

Re: Klan-Listi

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Helvíti er Jón Steinar alltaf með snjallar og tímabærar athugasemdir! Þetta þykir mér eiginlega algjör nauðsyn og verðugt verkefni fyrir hið næstum nýstofnaða Félag íslenskra netleikjasjúklinga. (Var einhver búinn að finna út nýja skammstöfun? Eða eigum við kannski bara að arga Talibönunum á Félag íslenskra náttúrufræðinga?) Mér fannst þetta t.d. alltaf snilld á sínum tíma: http://counter-strike.is/clanlist.htm Rooste

Re: Clan 3D hættir í CS

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Sorglegt! Grátlegt! Hábölvað! Hinir agureysku vinir okkar horfnir á braut. Nú eru bæði vinaklön GGRN hætt! (Vona að þarna sé ekki um orsakasamband að ræða.) Við erum einir í öllum heiminum! Örstutt eftirmæli. 3D var eitt af skemmtilegri klönum á Íslandi en þar fóru sannkallaðir séntilmenn sem höfðu rétta attitjúdið (ef undan er skilinn dónaskapur og graddatilburðir 3D|Millers í garð DangerGirl). Hið Akureyska mont, eða vindur sem sprottinn er af rótgróinni minnimáttakennd, er nokkuð sem ekki...

Re: FÍN

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Kæru félagar! Þið vitið að að skammstöfunin FÍN er frátekin? Sem sagt: VÍSINDASJÓÐUR FÉLAGS ÍSL. NÁTTÚRUFRÆÐINGA gegna þessari skammstöfun. Nú eru góð ráð dýr elsku grísirnir mínir! Roosterinn

Re: Félag Íslenskra Netspilara

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Þetta er allt hið athyglisverðasta og ekki er skammstöfunin ónýt: FÍN. En ég, líkt og þú Sinai, hef reynt að fylgjast með þessari umfangsmiklu umræðu, en fæ ekki nokkurn botn í hver ætti að vera tilgangurinn með slíku félagi. Nema þá einna helst að vera einhverskonar sníkjufélag, fá fyrirtæki til að punga út fyrir flugfarseðli til að menn geti farið út í lönd til að spila netleik. Ég er smeykur um að sá forstjóri sem er með eitthvað á milli eyrnanna myndi spyrja sem svo: En er þetta ekki...

Re: Fréttir úr herbúðum FH

í Knattspyrna fyrir 24 árum, 5 mánuðum
hvaða skítakomment var nú þetta?

Re: ccp ætlar að skrá sig úr icsn!!

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
[GGRN]Fréttir með puttann á púlsinum einsog fyrri daginn… Ég vil nú kannski ekki segja (einsog einn sem ég heyrði í áðan) að það sé graftarnabbalykt af þessu - svo ekki sé nú bara sagt bleiulykt - en ef rétt reynist, þá hlýtur sú ákvarðanataka að teljast fúllyndisleg svo ekki sé meira sagt. Hvar er nú TomB vinur minn? Verður hann ekki að grípa í taumana og segja: Hingað og ekki lengra! Eða það sem væri en öflugara: Knifah, Knifah end of rant! Roosterinn

Re: Ég er pirraður

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Ég hlýt að leggja orð í belg enda þykja mér fá bréf skemmtilegri en einmitt þau sem fjalla um hvað önnur bréf eru ómerkileg. Hvort kom á undan, hænan eða eggið? Taka má undir orð félaga míns Fidels varðandi það hvort ekki megi setja upp sérstakan tæknivandamálakork. Þá geta mannvitsbrekkur cs-heimsins sett fram hnífskarparskoðanir sínar, hugleiðingar og vandaðar kenningar fram ómengaðar. Að endingu langar mig til að benda Knifah á að fátt róar taugarnar meira en angurværir trompetttónar. Eða...

Re: Óþolandi !

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Skrýtið, ég lendi aldrei í þessu, þ.e. að vera ásakaður um svindl. Hvernig skyldi standa á því? Rooste

Re: Orðsöfnuður

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Það er nú yfirleitt talað um “munnsöfnuð” en ekki “orðsöfnuð” þannig að menn sem rugla þessum orðum saman eru líklega ekki vel til þess fallnir að dæma menn fyrir óviðeigandi kjafthátt. Eða hvað? Rooste

Re: Um Siðapostula og "refsingar"

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Crúsí beibí! Ætlaðirðu e.t.v. að segja: Jah, nú þykir mér þau tíðkast breiðu spjótin og virðist mér sumir haga máli sínu með formlegum hætti í þeim tilgangi einum að koma á framfæri hugsanlegri greind sinni. Vettvangurinn krefst þess tæplega að bókmál tíðkist og má jafnvel ganga svo langt að segja slíkt óviðeigandi tildur. Ef þér, í þínum yfirgengilega hégóma, þykir nauðsynlegt á að koma umdeilanlegri kunnáttu þinni í íslensku á framfæri er ritun bókar að öllum líkindum betur til þess...

Re: Orðsöfnuður

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Hvurskonar ritskoðunarhálvitar eru eiginlega í cs? Rooste

Re: Spáin í riðlunum á Skjálfta|4|2001|...

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Hvaða vitleysa mp4 minn góður! Ekki vanmeta þig svona. Þetta er mjög sannfærandi spá. Það eina sem hugsanlega mætti gera athugasemd við er að þú vanmetur [GGRN]. Að öðru leyti má kvitta undir þessa gagnmerku spá. Rooste

Re: Hjálp!!

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
agaxag minn! er hugsanlegt að æðri máttarvöld séu að segja þér eitthvað með þessu? rooste

Re: Skjálfti 4 prídíktíóns!

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Skylark, Skylark, of seint, of seinn! Ég veit ekki betur en ákveðið klan hér í bæ hafi fyrir lifandis löngu hugsað fyrir einmitt þessu og aðlað tiltekinn einstakling og veitt honum sérstaka viðurkenningarstjörnu! [GGRN]Rooste

Re: Af gefnu tilefni

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
ps. Já, hmmm, nú þegar ég renni yfir þessa ræðu mína tek ég eftir því að orðið “hverfi” vantar. Menn geta dundað sér við að finna orðinu stað. Ég hef það mér til málsbóta að ég var í mikilli geðshræringu þegar ég skrifaði þessa ádrepu og skal engan undra. Þegar maður sér svona kalkjúleraða og Makíavellíska stjórnunarhætti þá bara… bara… bara…

Re: Af gefnu tilefni

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Halló halló halló!!! Þetta eru einhver viðbjóðslegustu og lúalegustu brögð sem ég hef nokkurn tíma séð og er þá langt til jafnað. Að fórna einum í þeirri von að eðlilegur (og reyndar rökstuddur) grunur um að NeFin byggi sinn árangur á lævíslegum svindlum - og halda að þeir komist upp með það - er móðgun við okkur hina heiðarlegu cs-ara. Og nota orðatiltæki á borð við “Nöff said” til að hylja slóð sína er þvílík óskammfeilni að það hálfa væri nóg. Enda sé ég að menn hafa mikla samúð með...

Re: GGRN-WarMuseum

í Half-Life fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Selja selja? hvaðahvaðahvaða, við ggrn-menn erum að gera þetta algerlega af óeigingjörnum hvötum fyrir cs-menninguna á Íslandi. Heldurðu að Pétur W. Kristjánsson hafi verið að rukka fyrir háhæluðu skóna sína og 18 grýlna jakkann sem hann lét af hendi rakna til rokkminjasafnsins á sínum tíma? Ótrúlegt… En við erum reyndar að tala um eilítið breiðari línu en mýs, mottur og skjái, þó að slíkum munum sé að sjálfsögðu tekið fagnandi. ÉG vil undirstrika það sem Fidel segir, lokkur úr hári...

Re: 3. mesti leiðtoginn í cs á Íslandi

í Half-Life fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ha?

Hver er hinn raunverulegi leiðtogi ccp?

í Half-Life fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Núnúnúnú? Þú ert greinilega foringjahollur og samviskusamur drengur Öskubakki minn! En… þetta með leiðtoga ccp| kemur alveg flatt uppá okkur og er sannarlega leiður misskilningur ef rétt reynist. Af hverju standa allir í þeirri meiningu að TomB sé aðal-leiðtoginn í ccp? Ertu alveg viss um að MrRed sé leiðtoginn? Getur ekki verið að TomB stjórni bak við tjöldin án þess að þú vitir af því? TomB náttúrlega á nafnið og er andlit klansins útá við. Og hans andi svífur yfir vötnum auk þess sem hann...

Re: 3. mesti leiðtoginn í cs á Íslandi

í Half-Life fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ég sé að þetta er frábæra spörsmal er komið upp sem skoðanakönnun á forsíðu Half live og er það vel. Við hljótum að taka því fagnandi. Má segja að skoðanakönnunin sem slík hafi verið færð til, af ggrn.org á vettvang Huga. Þannig ætti þessi könnun að fá aukið vægi og verða til þess að könnunin sem slík sé ábyggilegri. Ég fer fram á það í aðfararorðum að menn geri grein fyrir atkvæðum sínum og best er því að sýna fordæmi. Rétt er að geta þess að höfundur könnunarinnar er sjálfur Fidel sem enn...

Re: Ég er eyturlyfjasjúklingur!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
99% þeirra sem nota heróín drukku mjólk í æsku! Það er ekki þar með sagt að þarna sé um orsakasamhengi að ræða. Þannig að menn eru á hálum ís þegar þeir fullyrða að hassneysla leiði oftar en ekki til neyslu sterkari efna. Menn eru reyndar mjög yfirlýsingaglaðir þegar þessi málaflokkur er til umræðu og það er líkt og menn hreinlega sjái rautt og hætti að hugsa. Rooste

Re: Ég er eyturlyfjasjúklingur!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Það er 99 prósent fylgni milli heróínneytenda og þeirra sem drukku mjólk í æsku. -
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok