Hæ gæs and görls!

Við GGRN-menn höfum, einsog margir þekkja, verið að grufla í djúpsálarlegum flækjum og pólitískum fléttum cs-veruleikans á Íslandi. Nú sem stendur erum við með afar athyglisverða könnun á heimasíðu okkar ggrn.org - korkar, þar sem við erum að kanna hver er 3. mesti leiðtoginn í Counter-Strike.

Nú kann einhver í fáfræði sinni að spyrja: Hvers vegna 3. mesti en ekki bara einfaldlega Mesti leiðtoginn? Þessu er fljótsvarað. [.Hate.]Memnoch* er ótvírætt mestur leiðtoga í cs og þó víðar væri leitað. Nú, og af meðfæddri hógværð hlýt ég að nefna mig til sögunnar sem næst mesta leiðtogann, því ég hef jú lagt mesta rækt við að tileinka mér stjórnvisku Memnochs*.

Þetta er augljóslega afar merkilegt spursmál og á kork okkar GGRN-manna hafa menn gert grein fyrir atkvæði sínu og sitt sýnist hverjum. [.evil.]Preacher er sem stendur með flest atkvæðin en fast á hæla hans kemur [-=NeF=-]BenDover og að sjálfsögðu sjálfur ccp|TomB. Nýliðinn [.Hate.]LuPlebb kemur einnig sterkur inn. Hins vegar hefur [.Love.]Skylark ekki hlotið náð fyrir augum kjósenda enn sem komið er.

Af því að við viljum ekki sitja einir að þessari skemmtilegu könnun, auk þess sem við viljum fá sem marktækastar niðurstöður, höfum við nú sent inn þessa sömu könnun til ritskoðunar og vonum við að ritskoðunarspekingar Huga séu okkur sammála um að hér sé um verðugt málefni að ræða. Við vonum að könnunin komi upp hið fyrsta og viljum við hvetja alla til að taka þátt auk þess sem við bindum vonir við að menn geri grein fyrir atkvæði sínu.

Bestu kveðjur,

Rooster.