Helgina 14-16 desember verður haldið 8 liða Counter-Strike mót Lan-Setursins. Keppt verður tvöföld umferð allir við alla. Vegleg verðlaun í boði fyrir þrjú efstu sætin. Skráning er hafin og áætlað að skráningu ljúki 12 desember.

Til að skrá lið þarf að senda póst á lan@lan-setrid.is og taka þarf fram eftirfarandi upplýsingar.

Nafn Clans
Fullt nafn & nick nöfn keppanda

Taka þarf líka fram þann aðila sem getur svarað fyrir clanið ef þess þarf.

Með kveðju

Lan-Setrið
Dalvegi 24
Kópavogi
<a href="http://www.lan-setrid.is">www.lan-setrid.is</a>

ps. nú er opið virka daga hjá okkur eða frá kl 12.00 og þar til öflugra netsamband kemur þarf ekki að greiða fyrir netið ef komið er til að lana.