Flestum þykir gaman að spá og tala um ástríðu sína, sem er í okkar nördanna tilfelli Counter-Strike og ætla ég hér með að taka af skarið og vera fyrstur til að spá smá fyrir Skjálfta 4 CS TP.

Slagurinn um toppsætið í CS á Skjálfta 4 verður mjög harður og ég tel að toppliðin verða NeF-A, Love-A, ccp-x(IRA-A kjarni) og ccp-ö(ccp-b í raun). Lið sem ég tel að gætu komið á óvart eru GGRN-A, VON-A, evil-A og Faith-A. Margir af bestu meðlimum .Hate. yfirgáfu klanið eins og þið flestir vitið og fóru flestir í NeF og .Love. sem bæðu græddu mikið á og eiga eftir að verða mun grimmari þennan Skjálfta en seinast þar sem þeim gekk ekki alveg nógu vel.

Á seinustu 2-3 Skjálftum hefur bardaginn um 1. sætið nánast eingöngu staðið á milli DCAP/ccp[ð] og .Hate. en það mun breytast á þessum tiltekna Skjálfta og með tilkomu HLTV mun þetta verða langbesti Skjálftinn CS séð til þessa og ég er mjög spenntur fyrir honum, gangi ykkur öllum vel og hafið gaman af og hugsið vel um lókal p1mpinn ykkar, þeirra er ábyrgðin og vinnan!

ccp|Ravenkettle
ccp.NeuroN
Ravenkettle