Við hér í GGRN erum að fara að setja upp stríðsminjasafn þar sem hin ýmsu morðtól cs-hetja íslands verða til sýnis. Sigdlir menn kunna að hafa heimsótt Imperial Warmuseum og þá barið augum fyrirmyndina. ccp|DeathHunter hefur þegar heitið okkur gamalli mús sem hefur mikið sögulegt gildi enda áætlað að um 20.000 frögg hafi unnist með þessari mús. Ef heldir spilarar vilja sjá sóma sinn í að leggja til ódauðlega cs gripi (eins og lokkur úr hinu fyrrum gullna faxi Memnoch*, í-svitnaða boli af skjálfta eða árituð herkænskuplön - líkt og [Love]Cupid var einhvað að rabba um) væri slíkt vel þegið, svo framarlega sem umræddu helgigripur hefur frambærilegt gildi fyrir cs-sögu íslands. Vetvangur stofnunar safnsins væri svo á komandi skjálfta.

Með von um jákvæð viðbrögð…


Fidel**