Ég var bara að velta því fyrir mér hvort það gildi einhverjar refsingar fyrir ljótan orðsöfnuð, því ég var að spila CS eftir langt hlé og sá tvo einstaklinga einkar helst vera rífa sig, svo ég sagði þeim að halda sig á mottunni og spila leikinn, en ég áttaði mig ekki á hversu lítið þroskaðir einstaklingar þetta voru, og hófu að rigna leiðindum yfir mann. Þetta var nú eitt af þeim ástæðum sem ég gaf CS upp á bátinn, mér finnst þetta hafa versnað ef eitthvað er.
Til dæmis má nefna þessa setningu sem ég skrifaði hér fyrir neðan


M*mm* þ*n *r *ð sle*kj* á m*r *nda*þ*rminn

Jú þetta vel þekkta mömmu áreittni, sem er í miklu uppáhaldi hjá yngra fólkinu.
En á að taka niður WON id og senda eins og með svindlara?<br><br>————————–
Við munum aldrei vita hina réttu leið,
Aðeins þá bestu.
————————–
-Crusader-