Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

rfm
rfm Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
1.018 stig
Lífið gengur út á að vera númer 1, ekki númer 2.

Vantar myndir (37 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Sælir kæru hugarar! Ég er að fara yil NY í næstu viku og ætla að missa mig í dvd kaupum. Það sem mig langar að fá frá ykkur eru hugmyndir að góðum gömlum klassíkum. Hvaða myndum mælið þið með sem eru í dag svona nokkurn veginn gleymdar en voru á sínum tíma þvílíkt box office hit og mikil kvikmyndaupplifun? Persónulega ætla ég að leita eftir m.a. Papillon með Steve McQueen og Dustin Hoffman, The Reivers með Steve McQueen, Shichinin no samurai ásamt The Party með Peter Sellers. Einnig er ég að...

Frábær þýðing! (21 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 1 mánuði
Eftirfarandi frétt birtist á mbl.is fyrir skömmu: Randy Quaid segir framleiðendur Brokeback Mountain hafa svikið sig Leikarinn Randy Quaid er sagður ætla að lögsækja framleiðendur kvikmyndarinnar Brokeback Mountain, eða Hryggbrotsfells, vegna launamála. Quaid segist hafa verið blekktur til þess að þiggja lægri laun en hann átti skilið fyrir leik sinn í myndinni. Framleiðslufyrirtækið Focus Features hafi logið því að honum að lítið ráðstöfunarfé væri til gerðar myndarinnar, að því er Quaid...

Úrslit Triviu 10 (2 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 1 mánuði
Bara fyrir forvitni (ekki að reka á eftir), á ekki að koma með úrslit úr triviu 10 og uppfæra topplistann?

Áhugaverð grein (23 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum, 1 mánuði
Ég bendi fólki á athyglisverða grein í Morgunblaðinu í dag á bls. 15. Þar er sett fram hlutlaus grein um sætuefni (aspartame) og hugsanlega skaðsemi þeirra. Hvet ég fólk til að lesa greinina.

Hygmyndaríkir þjófar! (7 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Það er nánast að maður sendi þetta á brandaraáhugamálið… Eftirfarandi er tekið af mbl.is: Veröld/Fólk | mbl.is | 6.2.2006 | 14:28 Veiðiþjófar stálu stöðuvatni Pólska lögreglan leitar nú þjófa sem stálu jarðýtu og notuðu hana til að fylla upp í tæplega tveggja metra djúpt stöðuvatn með jarðvegi. Þegar vatnið fylltist af jarðvegi var auðvelt fyrir jarðýtu- og veiðiþjófana að týna upp fiska sem sprikluðu í grunnu vatninu. Vatnið Elk, nærri bænum Lyck, var í einkaeigu og eigandinn, Edward...

Roy Keane hættur hjá Man.Utd! (22 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Já, þetta er dagsatt. Rúv greindi frá því rétt í þessu og ég fann þetta hvergi nema á www.manutd.com og kemur þar eftirfarandi fram: "Roy Keane to leave Old Trafford Manchester United has today reached agreement with Roy Keane for Roy to leave the Club with immediate effect. The agreement allows Roy to sign a long term deal with another club to enable him to secure his playing career beyond what would have been the end of his contract at United in the summer. The Club has offered Roy a...

Hver er þinn uppáhalds ******? (54 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Draugakúkur: Kúkurinn er vel þykkur og stífur, þéttur í sér og mjög þurr. Rassgatið lokast um leið og hann er sloppinn út og skilur hann engar örður eftir í hringvöðvanum. Þannig þegar þú skeinir þig þá kemur ekkert í pappírinn!!!!! Lambasparðakúkur: Út úr rassinum rúlla fullt af litlum kúlum em líkjast lambaspörðum. Stundum á hann það til að koma í heilu lagi en þó með lofti inná milli sem gerir það að verkum að kúlurnar losna í sundur þegar hann lendir á skálinni. Lakkrískúkur: Slepjulegur...

Prófkjörið um helgina (7 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 5 mánuðum
Sælir hugarar.. Var að velta fyrir mér hvort einhver hér væri að fara kjósa í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins um helgina. Ef svo er, hvernig ertu búin/n að hugsa listann? Minn lítur svona út í augnablikinu: 1. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson (sækist eftir 1. sæti). 2. Júlíus Vífill Ingvarsson (sækist eftir 2. sæti). 3. Kjartan Magnússon (sækist eftir 3. sæti). 4. Þorbjörg Helga Vignisdóttir (sækist eftir 4 .sæti). 5. Hanna Birna Kristjánsdóttir (sækist eftir 2. sæti). 6. Bolli Thoroddsen (sækist...

Kvikmyndir.com (13 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Sælir kvikmyndanördar. Ég les venjulega kvikmyndir.com til að sjá nýjustu dómana en undanfarið hefur vefurinn verið á hraðri niðurleið. Það eru nokkrar ástæður fyrir því: 1) Dómar koma yfirleitt löngu eftir að myndir eru teknar til almennra sýninga, ef þeir koma þá yfir höfuð. Það er virkilega slæmt þegar vefurinn gengur nánast aðeins út á það að birta kvikmyndagagnrýni. 2) Dómarnir eru frekar slappir, stuttir og langt frá því að vera nógu ítarlegir. Þetta á sérstaklega við þegar María...

*Klígja* (28 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 6 mánuðum
Uhhh og ojbara. Kvöldmaturinn í kvöld var ógeðslegur. Tengdamamma kann EKKI að elda almennilegan hrísgrjónagraut! Það er ekki það eina sem hún kann ekki að elda en það er mjög takmarkað sem hún kann. Því miður er ég ennþá verri kokkur þannig að ég verð að búa við þetta. Grauturinn er venjulega virkilega vondur, en í kvöld sló hann allt út. Ég hef hingað til borðað hann og þóst fundist hann góður þannig að tengdó gruni ekki neitt, en í kvöld henti ég helmingnum af grautnum þannig að það geti...

Gúrkutíð? (13 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Eftir stórmál undanfarna daga - Davíð Oddsson, Baugsmálið, Símapeningana og New Orleans - þá er kominn upp gúrkutíð í íslenskum fjölmiðlum eins og við mátti búast eftir margar athyglisverðar fréttir. Máli mínu til sönnunar bendi ég á eftirfarandi frétt sem birtist á forsíðu mbl.is nú fyrir stuttu. http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1158544

Áfram Ísland! (2 álit)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 7 mánuðum
Ég var að eyða tímanum inn á imdb.com eins og ég geri svo oft, og ákvað að fara enn og aftur inn á Flags of Our Fathers, nýju myndina hans Eastwoods sem skotin var hér á landi fyrir þá sem vissu það ekki. Allavega, það eru komin nokkur íslensk nöfn á leikaralistann og ég verð bara að segja að mér finnst það nokkuð kúl, sérstaklega þegar um er að ræða svona dýra og flotta mynd. Þá er bara að vona að hlutur íslensku leikarana verði stór í myndinni eftir klippingar.

Ómetanlegt (15 álit)

í Rómantík fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég og kærastan áttum þriggja ára afmæli á miðvikudaginn og ákvað ég að koma á óvart í tilefni dagsins. Ég prentaði út mynd þar sem við stóðum saman fyrir framan Vatíkanið núna fyrr í sumar og rammaði ég myndina inn. Ég fór með myndina í blómabúð og bjó til svakalega fallegan vönd sem samanstóð af gladíólu, lilju, þremur rauðum rósum (ein rós fyrir hvert ár) og einhverju grænu til að fylla uppí. Vöndurinn var rosalega vel heppnaður. Pakkningarnar með vendinum voru líka mjög vel heppnaðar og...

Clint Eastwood sönnunin (60 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Ég skrifaði í gær korkinn að ég hefði m.a. hitt Clint Eastwood og spjallað eilítið við hann en nokkrir trúðu mér ekki þannig að ég ákvað að skella inn mynd af tilefninu, til þess að sanna fyrir nokkrum smákrökkum hérna sem halda að maður sé stanslaust að ljúga. Ég er ótrúlega stoltur af því að hafa sett inn myndina, ég þakka nokkrum hugurum ráðin hvernig á að setja inn mynd á netið … það er ferlegt að vera svona tæknilega fatlaður :'( Allavega, hérna kemur myndin:...

Clint Eastwood (47 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Jæja hugarar, ég varð heppinn í dag. Ég hitti meirihlutann af crew-inu í myndinni hans Clints, Flags of Our Fathers, m.a. Clint sjálfan. Sem betur fer var ég með myndavél þannig að ég gat smellt okkur nokkrum myndum. Kallinn er bara nokkuð svalur ennþá þrátt fyrir 75 ára aldur, mjög vingjarnlegur og kammó. Einnig hitti ég Jesse Bradford, Barry Pepper og Paul Walker. Nokkuð góður dagur verð ég að segja.

Gay Pride (25 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 8 mánuðum
Mikið rosalega var Gay Pride skrúðgangan slök í ár, eiginlega bara leiðinleg. Hún hefur nú verið miklu flottari en þetta, fer niður á við með hverju árinu. Vonandi verður þetta eitthvað svakalegt á næsta ári! Sá þetta einhver?

Ert þú tónlistaraðdáandi? Lestu þá þetta! (46 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Ég var að tala við félaga minn áðan sem vinnur í tónlistarbransanum og hefur góð sambönd í þeim bransa. Hann sagði mér góðvinur sinn (sem er í einni þekktust popphljómsveit Íslands - nefni engin nöfn) staðfesti að Ragnheiður Hansen, sem flutti m.a. inn Metallica í fyrra, er búin að skrifa undir samning við bæði U2 og Rolling Stones um að koma hingað til lands á næsta ári og halda risatónleika í Egilshöll. Þetta er hins vegar ekki orðið opinbert en sagan segir að þetta sé staðfest og það frá...

Eldsmiðjan (51 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Sælir hugarar. Ég hafði mikið heyrt af góðum pístum í Eldsmiðjunni og því lagði ég leið mína þangað í gær. Pítsurnar voru frábærar, virkilega góðar. Það sem hins vegar er tilefnið fyrir þessum korki er þjónustan á Eldsmiðjunni. Hún er fyrir neðan allar hellur. Ég kom þangað fyrir kl. 21 ásamt sex vinum og það var ekki mikið að gera. Samt sem áður, þegar við spyrjum um borð, er okkur sagt að það sé ekkert laust fyrir 7 manns fyrr en í fyrsta lagi 20 mín. Allt í lagi með það, við gátum alveg...

Opruh þátturinn! (71 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Er fólk ekki að grínast?! Ég var að enda við að horfa á Opruh þáttinn, rétt eins og meirihluti landsins, og ég er bara hvumsa. Voru íslenskar konur virkilega að gera mál úr þessu viðtali Svanhildar um lauslæti kvenna? Þetta var SMÁRÆÐI. Ég endurtek, SMÁRÆÐI! Mig langar ekki að segja þetta, en ég segi þetta samt: Vá hvað þið eruð viðkvæmar.

Króatía 4 - 0 Ísland (8 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Ég verð bara að segja eins og er: Ég er nokkuð sáttur við þessi úrslit. Hefði verið sáttari við stærra tap en að tapa með fjórum mörkum “fullnægir” mér. Áfram Ísland!

Hvað er eiginlega í gangi?!?! (19 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 1 mánuði
Halló! Hvað er að gerast með okkur Íslendinga? Það er móttökunefnd á Reykjavíkurflugvelli til að taka á móti Bobby Fischer! Það er bein útsending á Rúv og Stöð 2 frá flugvellinum, það er verið að rjúfa kvikmynd sem er hálfnuð á Stöð 2 til að sýna frá þessu. Hvað er eiginlega að? Það mætti halda að þetta væri Elísabet Bretlandsdrottning svo mikið mál er þetta. Þetta minnir mig á þegar Keikó kom til Eyja árið '97. Það var álíka mikil klikkun, bein útsending og læti. ALVEG ÓTRÚLEGT.

Pink Panther safnið (1 álit)

í Kvikmyndir fyrir 19 árum, 3 mánuðum
Er ELKO virkilega að selja Pink Panther safnið á heilar 2.995 krónur?? Hvernig fara þeir að því? Í Skífunni kostar safnið 8 þús kall. Það er með öllu óskiljanlegt af hverju safnið er svona ódýrt. Er þá íslenskt tal, vitið þið það?

Laugardalsvöllurinn og íslenskur fótbolti (27 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég vil byrja á að nefna það að ég er frjálsíþróttamaður og því ekki algjörlega hlutlaus. En það sem ég mun skrifa hér fyrir neðan er staðreynd sem ég get staðið við. Og mér er alveg sama þó að einhverjar fótboltabúllur verða fúlir núna og segja að frjálsar eru ömurlegar. Því ég veit betur. Ég verð að vera hreinskilinn. Ísland getur ekki baun í fótbolta. Ég skil ekki þennan HM eða EM draum hjá okkur. Við munum aldrei komast þangað því við erum einfaldlega bara slakir fótboltamenn. Við eigum...

Rakkinn minn svo helvíti graður! (8 álit)

í Hundar fyrir 19 árum, 8 mánuðum
Hann er að verða 8 mánaða og sýndi fyrstu merki “graðsins” fyrir viku síðan. Á líka 11 ára gamla tík og hann er óður í að fara upp á hana. Ég vona að hann hafi ekki náð því, því ég vil ekki fara lenda í hvolpastandi núna og sérstaklega ekki með 11 ára gamla tík. Hundurinn er graður í hana og tíkin vill að hann fari upp á sig. Er eitthvað hægt að gera án þess að gelda hann? Ég vil það nefnilega ekki en ástandið er óþolandi eins og þetta er núna. Það þýðir ekkert að skamma rakkann því hann...

ÍA 0 - 4 Fram (24 álit)

í Tilveran fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Ég bara spyr: Hverjir eru lang-lang-langbestir??
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok