Uhhh og ojbara. Kvöldmaturinn í kvöld var ógeðslegur. Tengdamamma kann EKKI að elda almennilegan hrísgrjónagraut! Það er ekki það eina sem hún kann ekki að elda en það er mjög takmarkað sem hún kann. Því miður er ég ennþá verri kokkur þannig að ég verð að búa við þetta.

Grauturinn er venjulega virkilega vondur, en í kvöld sló hann allt út. Ég hef hingað til borðað hann og þóst fundist hann góður þannig að tengdó gruni ekki neitt, en í kvöld henti ég helmingnum af grautnum þannig að það geti verið að hún túlki það sem einhvers konar vísbendingu.

Allavega, þetta var algjörlega tilgangslaus korkur! Góða helgi!
Lífið gengur út á að vera númer 1, ekki númer 2.