Ég var að eyða tímanum inn á imdb.com eins og ég geri svo oft, og ákvað að fara enn og aftur inn á Flags of Our Fathers, nýju myndina hans Eastwoods sem skotin var hér á landi fyrir þá sem vissu það ekki.

Allavega, það eru komin nokkur íslensk nöfn á leikaralistann og ég verð bara að segja að mér finnst það nokkuð kúl, sérstaklega þegar um er að ræða svona dýra og flotta mynd. Þá er bara að vona að hlutur íslensku leikarana verði stór í myndinni eftir klippingar.
Lífið gengur út á að vera númer 1, ekki númer 2.