eh, vaknaði með þetta ljóð einhvernveginn í hausnum og hef ekki náð að gera upp við mig hvort ég eigi að taka það og farga því því það sé svo lélegt. eða hvort ég fíli það. comment?

Strengjabrúður

Líkt og strengjabrúður fylgjum vér
í einu og öllu fyrirskipunum valdsins í vestri,
í blindni
Algerlega ómeðvituð og óupplýst
um afstöðu þá er vér tökum,
sköpum vér ný vandamál fyrir heiminn.