“Hvort finnst þér betra…”
“…honnínöttsseríjós eða venjulegt seríjós?”
-Spurði drengurinn stúlkuna útá leikvellinum í frímínútum.
“Nú auðvitað venjulegt seríjós”
-Svaraði stúlkan en bætti svo við.
“…því honnínöttsseríjós er svo rosalega óhollt”

Og vonbrigðin leyndu sér eigi í augum litla drengsins.
Honum hafði alltaf þótt venjulegt seríjós vera ótrúleg sóun á bragðlaukum.