Það kostar 11 þúsund að taka högna og 13 þúsund að taka læðu. Það sem þú ert að borga fyrir er gelding, örmerking og ormahreinsun. Þetta er eitthvað sem maður á að gera fyrir köttinn sinn og ef maður er ekki tilbúinn í að borga þetta fyrir köttinn, þá held ég að maður sé bara ekkert tilbúinn í að fá sér kött. Þennan pening þarftu hvort eð er að borga og jafnvel meira ef þú tekur kött annars staðar, ógeldan og óörmerktan.
8 ára er ekki hár aldur fyrir kött sko, þeir geta léttilega orðið 12-13 ára og jafnvel eldri ef vel er farið með þá.. Ég á einn 9 ára sem er bara mjög hress ennþá :)
Hann var það.. Opnaði alltaf útidyrnar.. Mjög skemmtilegt á veturnar þegar maður kom heim og dyrnar höfðu verið opnar heillengi og orðið ískalt inni hehehe :P Algjör snillingur, hann Sókrates minn :)
Já reyndar.. átti samt einu sinni högna sem ég geldi aldrei (hann lenti svo fyrir bíl) og hann var yndislegur.. gerði aldrei neitt af sér.. En var undantekning :D
Mín reynsla er sú að högnarnir séu blíðari.. hef kynnst mörgum styggum læðum í gegnum ævina sem aldrei fengu neitt annað en ást frá eigendum sínum (mín er gott dæmi, systur minnar líka) Held að læður þurfi oft að vera einar á heimili, þ.e.a.s. ekki fleiri kisur, þær vilja vera drottningar ;)
Ég fæ alltaf sting í hjartað þegar ég sé hvað sumir geta verið vondir við kisurnar sínar.. henda þeim út úr bíl á ferð… Gott að vita að það er fólk eins og þú til í heiminum sem bjargar svona skinnum :)Vona að þú finnir gott heimili handa henni.. ég get því miður ekki hjálpað þar sem ég er á Akureyri (býst við að þú sért í rvk). Svona falleg og góð kisa á skilið gott heimili..
Ég samhryggist innilega.. Hef sjálf misst 4 ketti… 2 lentu fyrir bíl.. hinir voru svæfðir vegna veikinda.. Ég er ekki viss um að það sé léttara að svæfa dýrið sitt.. ég fékk allavega svo ógeðslega mikið samviskubit, fannst ég hafa brugðist kisunni minni.. Veit að það er ekki rétt, en þannig leið mér…
Málið með Tommy Lee er ekki það að hann sé eitthvað frægur fyrir að vera einhver súper trommari.. við vitum öll af hverju Tommy er eins frægur og hann er ;)
Þetta googlea dæmi er vegna þess að Storm Large (sú sem sagði þetta við Tommy) hefur setið fáklædd fyrir á myndum sem hægt er að finna með því að skrifa nafnið hennar á google ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..