Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Sókrates var að deyja... (19 álit)

í Kettir fyrir 20 árum
Elsku litli Sókrinn minn varð fyrir bíl og dó. Löggan var að koma með hann fyrir um hálftíma síðan. Hann er allur í blóði, greyið skinnið. Hann var svo sniðugur kisi, kunni að opna dyr og var yndislegur í alla staði, með alveg rosalega gul augu. Ég sakna litla skinnsins svo mikið og ég hef ekkert gert nema gráta síðan löggan kom með hann áðan. Nú verður litla barnið mitt jarðað við hliðina á henni Snældu minni sem dó 3. mars í fyrra á sama hátt. Ég hef ákveðið að hleypa köttunum mínum ekkert...

Viggo Mortensen (12 álit)

í Fræga fólkið fyrir 20 árum
Viggo er fæddur 20. október 1958, í Ameríku. Pabbi hans, Viggo Mortensen Sr, er Dani en mamma hans Ameríkani. Þegar Viggo var lítill flutti fjölskyldan oft og hefur hann ma. búið í Argentínu, Venesúela og Danmörku. Hans danska eðli er sterkt í honum og talar hann dönsku reiprennandi. Auk þess talar hann spænsku. Hann getur auk þess klórað sig léttilega fram úr norsku og sænsku. Þegar hann var lítill las pabbi hans alltaf fyrir hann Íslendingasögurnar og lærði Viggo fljótt að meta Ísland og...

Valdi (2 álit)

í Kettir fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hæhæ, mig langaði að segja ykkur aðeins frá honum Valda mínum, sem ég fékk hérna á huga í janúar. Hann er 4 eða 5 ára núna í júní og er mjög stór og tignarlegur köttur. Hann er 6 kg, með langar lappir og stóra hramma. Þegar ég fékk hann var ég ekki alveg að skilja nafnið Valdi, en eftir að ég kynntist honum skil ég það fullkomlega. Hann þarf alltaf að hafa völdin á heimilinu. Ég er með 3 aðra ketti, Sókrates, Húfu og Buxa. Sókrates er rétt tæplega eins árs og besti vinur Valda, enda eru þeir...

Halló Akureyri (18 álit)

í Djammið fyrir 21 árum
Þó enn sé langt í Verslunarmannahelgina eru eflaust nokkrir byrjaðir að hugsa um hvað á að gera um þá blessuðu helgi og býst ég fastlega við að margir hér ætli að skella sér á Þjóðhátíð. En ástæða þess að ég skrifa hérna er til að tala aðeins um hina frægu Halló Akureyri sem síðast var haldin almennilega árið 1999 með 15000 gestum í bænum og þvílíku stuði að margir sem komu þá muna ekki eftir öðru eins. Eftir þá helgi ákváðu stjórnendur Akureyrarbæjar að þessi frábæra hátíð yrði lögð niður...

Það var keyrt á Snældu mína.... (30 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 1 mánuði
Löggan hringdi klukkan hálftólf og sagði við mömmu að það væri búið að keyra á Snældu, elstu kisuna okkar, hún hefði orðið 11 ára í júlí. Sem betur fer hafði einhver látið þá vita svo við þurftum ekki að leita af henni þegar við myndum fara að sakna hennar. Lögreglumaðurinn lét okkur fá ólina hennar og spurði hvort við vildum fá hana líka. Við sögðum auðvitað já því við ætlum að jarða hana í sveitinni okkar í kattakirkjugarðinum, þar sem liggja fyrir tveir kettir systur minnar sem dóu á sama...

Jon Bon Jovi (20 álit)

í Fræga fólkið fyrir 21 árum, 2 mánuðum
Nafn: John Francis Bongiovi jr. Fæddur: 2. mars 1962, Perth Amboy, New Jersey, klukkan 8:45. Ólst upp: Sayreville, New Jersey. Eiginkona: Dorothea Rose Hurley Bongiovi, fædd 29. september 1962. Þau kynntust í skóla og hafa verið saman síðan þau voru 18 ára. Þau létu pússa sig saman í Graceland Chapel, Las Vegas, 29. apríl 1989. Börn: Stephanie Rose Bongiovi fædd 31. maí 1993, Jesse James Louis Bongiovi fæddur 19. febrúar 1995 og Jacob Hurley Bongiovi fæddur 7. maí 2002. Jon er söngvari og...

Kettirnir mínir (9 álit)

í Kettir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég á þrjá ketti, hana Snældu sem er 10 ára og börnin hennar, þau Húfu og Buxa sem eru 9 ára og svo er það hann Sókrates “litli” kettlingurinn á heimilnu, en hann er um 7 mánaða og gífurlega feitur. Snælda gamla sem er hvít með brúnum blettum, hefur margsinnis lent í óhöppum eins að detta ofan í fiskabúrið einu sinni, detta tvisvar ofan í klósettið, einu sinni með hausinn á undan og í hitt skiptið með rassinn á undan. Hún er svolítið hjarveik höldum við því að alla tíð hefur hún orðið þreytt...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok