Hann Malli er týndur og er hans sárt saknað. Hann er búinn að vera að heiman í 3 vikur. Hann er grábröndóttur og hvítur, hann var með bláa ól þegar hann fór að heiman en að öðru leyti ómerktur. Hann er með hvíta týru í endanum á skottinu sem gerir hann auðþekkjanlegan. Hann býr í þorpinu á Akureyri en talið er að sést hafi til hans niðri í bæ, hjá Átaki. Ef svo er þá er hann langt að heiman og ratar sennilega ekki heim! Ef einhver hefur upplýsingar um Malla, hvort hann er lífs eða liðinn látið mig þá vita!