Það var nú sagt að Britney hefði verið búin að ákveða fyrir löngu að taka með keisara því hún vildi ekki ganga í gegnum sársaukann við venjulega fæðingu.. En hvað veit maður svo sem? Þessir slúðurfréttamenn segja ýmislegt..
Það er hellings snjór hérna á Akureyri.. búið að snjóa meira og minna alla helgina.. Held að fólk sé farið að gera sig tilbúið til að fara upp í Hlíðarfjall ;)
Ó nei það er ég svo alls ekki.. ég er búin að reyna og reyna að bjarga þessari kisu.. málið er að hún er ekki blíð við neinn nema mig og því svolítið erfitt… Ég elska þennan kött svo rosalega mikið en ég hef ekki ennþá fundið neinn sem vill prófa….
Heldurðu að einhver vilji taka við ketti sem mígur út um allt? Það er ekkert víst að það hætti þó hún fari á annað heimili… Held að enginn vilji taka kisu að sér til að prófa…
Við erum með tvo sandkassa. Þessi kisa er mikið úti en strax þegar hún kemur inn þá er það bara að spræna á næsta hlut. Held að þetta sé ekki út af kassamálum, held að hún sé bara svo kröfuhörð og vilji bara fá að vera ein á heimili ;)
Málið er að ég á marga ketti og tvær læðurnar gera þetta! Einnig veit ég að einn högninn okkar gerir þetta en hann er orðinn gamall og spurning hvort hann haldi ekki lengur. Læðurnar eru mjög mikið á móti hvor annarri og eiginlega bara öllu í kringum sig svo það er líklegt að þær séu að mótmæla. En ég get nú ekki farið að losa mig við alla hina kettina út af því, þá sem gera ekki neitt. Það tekur virkilega á að þurfa kannski að svæfa greyið því mér þykir svo ofboðslega vænt um hana en ég er...
Fallega gert af ykkur. Ég hef átt tvo ketti sem lentu fyrir bíl og þeir voru báðir skildir eftir :( ég verð svo reið að hugsa um það að einhver hafi látið elskurnar mínar liggja á götunni, kannski ekki einu sinni alveg dánar!!!
Ég samhryggist innilega.. hef lent í þessu tvisvar og veit hvað þetta er erfitt :( Kettirnir mínir voru grafnir í sveitinni hennar mömmu hjá sumarbústaðnum okkur í skóginum. Það er ekki mikið sem þarf að gera þegar svona gerist.. Bara að ákveða hvort maður vill hafa kisu í kistu eða ekki og jarða hana svo. Það sem er erfiðast við þetta er að venjast því að kisa sé ekki lengur á heimilinu. Sjálf á ég núna 9 ketti en sakna þeirra tveggja sem ég missti ennþá gífurlega mikið. Vonandi að þið...
Ég er með eina kisu sem vantar heimili, svo er vinkona mín með 2 sem þurfa að fara saman og svo önnur stelpa sem ég þekki með einn kisa ;) Við erum allar á Akureyri.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..