Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

porky
porky Notandi frá fornöld 49 ára karlmaður
532 stig
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.

Re: Ferðasaga(Hróarskelda'98)

í Ferðalög fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ég hef beðið í 4 tíma á þessu sama lestarstöðvagólfi en það var reyndar eftir tónleika og á þriðjudegi. Þetta var það versa sem ég hef gert á ævinni, vera svona hálffullur og hálfþunnur og ekkert hægt að kaupa að éta eða drekka bara skítugt gólfið og allt lokað á istegade. En djöfull væri ég til í að gera þetta aftur.

Re: Bakveiki

í Heilsa fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ég hef svipaða sögu að segja, fór til færustu bæklunarlækna sem fyrir fundust á íslandi en ekkert kom sem þeir vildu gera neitt í. Ég marg spurði þá hvort ég væri nokkuð með aðra löppina styttri því pabbi er með aðra löppina styttri. En ég var mældur og ekkert kom í ljós. (Ég var mældur með því að liggja á bekk og mælt frá nafla og niður að kúlunni sem á innanverðum ökklanum) Ég fór í 100 myndatökur af öllum gerðum og stærðum en ekkert. Einn daginn fékk ég nóg og talaði við félaga minn sem...

Re: Einhver comment?

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 4 mánuðum
þessar upplýsingar með örgjörvanum er fyrir 1,7 GHZ og skjákortið sem fæst fyrir 1790 dkr er 64 mb GeForce3 Ti200. Það vantaði þarna 3 á endann.

Ekki bögga svínið

Re: Einhver comment?

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 4 mánuðum
þetta eru þær upplýsingar sem er að fá um það sem þeir setja í tölvuna. Örgjörvi= 1,6 Ghz 256 chache(b) Minni= 512 DDR-SDRAM (2x256) Skjákort= 16 mb Ati Rage pro Agp.Fyrir 1790 dkr fæ ég 64mb GeForce Ti200. CD-Rom = 20/48 IDE Skrifari= CD-RW 24x/10x/40x Hljóðkort= soundblaster live Einu upplýsingarnar sem ég hef um örgjörvan er að hann er Intel pentium 4 Internal L1 cache 32k non-blocking External L2 cache 256k on-die System bus speed 400 MHZ Chipset intel 850. Einhver spurði hvar ég ætlaði...

Re: Myndin af Reykjafossi

í Ljósmyndun fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Flott mynd

Ekki bögga svínið

Re: 32

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ef þetta er orðið eitthvað í kringum 300 þús kallinn er þá ekki spurning um skjávarpa? ég veit að það er ekki sound í þeim en þú getur svona nánast ráðið hvað þú ert að horfa á stóra mynd, er það ekki annars? Spyr sá sem ekki veit:)

Re: Desemberveidar Rafaello.

í Veiði fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ég sé það núna þú átt heima í álaborg, fannst eins og þú ættir heima í Köben

Re: Desemberveidar Rafaello.

í Veiði fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Góð saga ég bíð eftir seinni hálfleik. p.s það er skot svæði í Horsens við hliðin á golfvellinum

Re: Ný kynslóð

í Handbolti fyrir 24 árum, 4 mánuðum
sammála vaffess það á ekki að eyðileggja unga menn á einhverju sem þeir eru ekki tilbúnir fyrir. Margir af þessum ungu strákum þola ekki pressuna sem er sett á þá af almenningi og fréttamiðlunum. Bara taka þessu rólega

Re: nýr veggur í Hafnarfirði

í Jaðarsport fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Skátaveggurinn er nú meira svona gamall ostur sem er hægt að leika sér í. Hann er 4m breiður og 5 metra hár með 50 cm breiðu slútti það kallast varla veggur er það

Re: Hvað er Íslandssími að spá ?!?! Kæra Símann !!

í Half-Life fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ég er nokkuð viss um að Landssíminn er að rukka íslandssíma fyrir alla notkun á leigulínunni og þá senda þeir þeim bara reikning fyrir notkun á línunni. Ekki fer landssíminn að telja fyrir íslandssíma hvað er innanlands og hvað er utan. Og íslandssími getur ekki annað en borgað þar sem þeir eru með línurnar á leigu og verða að þjóna sínum kúnnum.

Re: Á að leyfa skotveiðar á ÁLFT ??

í Veiði fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ég er nú ekki mikill veiðikall og svo bý ég í Danmörku núna þannig að það nú ekki mikið um skotveið hjá manni, ekki með byssu eða neitt.

Re: Á að leyfa skotveiðar á ÁLFT ??

í Veiði fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Já þetta er kannski rétt hjá þér. Ég er nú ekki mikill skotveið kall sjálfur en nokkrir vinir mínir eru mikið að skjóta og þeir eru eftir því sem ég best veit heiðarlegir með það að skjóta ekki í leyfisleysi. En þú vildir bara vita hvað okkur finnst og ég skrifaði það. Ég er alls ekki á móti veiðum eða neitt svoleiðis, þetta var og er bara það sem mér finnst svona fljótt á litið, en það getur vel verið að það breytist. Það er ekki bara í veiði þar sem óheiðarlegir skemma fyrir þeim...

Re: Hvad er thad furdulegasta sem thu hefur bordad?

í Veiði fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ég hef borðað Kengúru. nammi namm

Re: ekki lesa, test

í Heilsa fyrir 24 árum, 4 mánuðum
þú ert hálfviti

Ekki bögga svínið

Re: Á að leyfa skotveiðar á ÁLFT ??

í Veiði fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Ég er persónulega ekki á móti skotveiði en ég held að þetta eigi eftir að verða til þess að stofninum verði útrýmt. Ef það er gefið leyfi til að skjóta fuglinn þá gera men það og menn eiga eftir að freistast til að skjóta hann þó að þeir hafi ekki þetta band sem þú ert að tala um. Þetta er ekki eins auðvelt og með hreindýrin því fuglinn er miklu minni og auðveldara að fela bráðina ef menn hafa skotið fuglinn í leyfisleysi.

Re: Vírusar

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 24 árum, 4 mánuðum
þakka þér fyrir upplýsingarnar en ég er búinn að fá fileinn sendann. En takk samt, kannski að einhver annar geti notað þetta:) Djöfull gat ég verið heimskur að gleypa þetta alveg hrátt:( ég er búinn að læra að taka aldrei neitt beint að netinu án þess að hugsa, smá:)

Re: Hvað er Íslandssími að spá ?!?! Kæra Símann !!

í Half-Life fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ég er með eitthvað sem heitir Stofanet og ég borga minnst 60 dkr á mán en mest 200 dkr á mán og þá er má ég downloda 4gb. En ég er 99% viss að ég þarf að borga fyrir notkun innan DK. meigið samt tékka á stofa.dk ef þið viljið

Re: Hvað er Íslandssími að spá ?!?! Kæra Símann !!

í Half-Life fyrir 24 árum, 4 mánuðum
nightshck: það er bara eins og á íslandi, teli danmark rukkar ekki fyrir innanlands notkun í danmörku en þeir sem verða að nota línurnar þeirra þurfa að rukka fyrir það því þeir þurfa að borga fyrir það. Teli danmark er rekið alveg eins og Landsíminn á íslandi, þ.e.a.s þeir eru með allar línur í landinu eins og Landsíminn og enginn kemst á þær nema að þurfa að borga þeim eins og Landsíminn. Þetta er nákvæmlega sama dæmið eins og á íslandi. p.s þeir sem ekki vita þá var Teli Danmark (TDC) að...

Re: Plexigler....

í Bílar fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ég held að það sér til fyrirtæki sem heitir AKO plast sem selur þetta.

Ekki bögga svínið

Re: Hvað er Íslandssími að spá ?!?! Kæra Símann !!

í Half-Life fyrir 24 árum, 4 mánuðum
jú það er víst rukkað fyrir innanlands traffík hérna í danmörku. þetta er soldið fyndið með þetta mál. Íslandssím er að kæra vegna þess að þetta stenst ekki samkeppnislög, af hverju? jú sennilega vegna þess að landssíminn er að leigja þeim línurnar og sennilega fyrir alla notkun, sama hvort um innanlands eða utan er að ræða en á meðan er landsíminn að gefa þetta á sínum línum sem ríkið borgaði að sínum tíma. En ég þori að veðja að einhver af ykkur sem er búinn að vera að garga hérna sem hæst...

Re: Hver stelur drullutjakk?

í Jeppar fyrir 24 árum, 4 mánuðum
það er soldið meira en að segja það að stela spili. þó að það sé á hraðtengi þá er vírinn yfirleitt festur við krók undir bílnum og svo er spilað inn þar til að vírinn er sæmilega strektur. Þetta gerir það nánast ómögulegt að kippa með sér spilinu án þess að vera með eitthvað meiri háttar vesen eða klippa á vírinn. Ég hef prófað að reyna að taka spil af sem var fest svona og það var ekki hægt, kannski er ég bara aumingi en mér tókst það allavega ekki. Mér fannst þetta svo asnaleg rök fyrir...

Re: Bílasalar tala niður til kvenþjóðarinnar

í Bílar fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Það virðist líka eins og maður sé að kaupa bílinn af þeim sjálfum og eru að taka ákvarðanir fyrir fyrir eigendurnar. Og svo eru þessir asnar alltaf að braska eitthvað sjálfir og eru að rembast við að troða upp á man bílum sem þeir eða vinir þeirra eiga sem maður hefur ekki minnsta áhuga á að kaupa. Endilega einhver bílasali komi hérna fram og segi sína meiningu

Ekki bögga svínið

Re: Lögreglan í Hafnarfirði full af geðsjúklingum?

í Deiglan fyrir 24 árum, 4 mánuðum
ég tek aldri mark á neinum sem stendur í DV og hvað þá Fréttablaðinu, þetta eru skítablöð sem ég hef ekki einu sinni áhuga á að skeina mér á.

Re: Góð bílasmíði

í Bílar fyrir 24 árum, 5 mánuðum
var ekki sindrastál með hann í láni? ig minnir endilega að hann hafi bara verið auglýsing fyrir ryðfrítt stál í einhvern tíma. en ég er nú svo vitlaus

Ekki bögga svínið
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok