Þannig er mál með vexti að ég fékk sendan mail í dag þar sem ég var varaður við þessum “vírus” sulfnbk.exe og að hann fyndist ekki vegna þess að hann væri hluti af stýrikerfinu og svo sá ég þetta á mbl.

Reynt að plata tölvunotendur til þess að eyða skrá

Svo virðist sem netnotendur hafi fengið tilkynningar um tölvuveiru, sem er sögð fela sig í skránni SULFNBK.EXE og geta valdið skaða í tölvum. Hins vegar er ekki hægt að finna SULFNBK.EXE með veiruvarnarforritum því um er að ræða stýrikerfisskrá og ef henni er eytt getur stýrikerfi tölva hrunið, að því er fram kemur á vefsvæði Kaspersky Anti-Virus á Íslandi. Segir að rússneska veiruvarnarfyrirtækið Kaspersky Labs hafi greint frá SULFNBK.EXE og sagt að um hættulega veiru væri að ræða. Sagt er að veiran geti hafið skemmdaraðgerðir 1. júní.

Þá kemur fram að SecurityPortal.com hafi fengið skrána í hendur og þangað megi rekja upphaf gabbsins, en ástæðan er talin vera sú að vélin með þessa skrá reyndist vera sýkt af MAGISTR-veirunni. “Það ítrekast að SULFNBK.EXE er ekki vírus þótt í einhverjum tilfellum geti hún verið sýkt eins og aðrar skrár í tölvum ef einhver veira er fyrir hendi. Það má ekki undir neinum kringumstæðum eyða þessari skrá heldur skal, ef grunur um sýkingu er fyrir hendi, láta veiruvarnarforrit skanna vélina og gera viðeigandi ráðstafanir eftir því,” segir á vefsvæði Anti-Virus á Íslandi.

En tölvann er í lagi ennþá og ég er að reyna að koma þessu í lag aftur en ég finn hvergi þennan file sem ég eyddi svo samviskusamlega út hjá mér áðan. Hann er ekki á Win me disknum, eða allavega finn ég hann ekki og svo minnir mig að þetta hafi verið dos file og ég er ekki með dos á reiðum höndum þessa dagana.

Þetta kennir mér að vera ekki að breyða út það sem er á netinu og það sem maður fær á maili. Ég er svo vitlaus að það hálfa væri nóg, það eru svona menn eins og ég sem eigum eftir að klúðra heiminum.:(

Er einhver sem getur hjálpað mér með þetta?
Gerðu hlutina almennilega eða vertu heima.