Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

plone
plone Notandi frá fornöld 142 stig

Mount Eerie, Woelv og Micah Blue Smaldone (1 álit)

í Músík almennt fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Dagana 26. og 27. mars munu Mount Eerie (áður The Microphones), Woelv og Micah Blue Smaldone halda tvenna tónleika hér á landi. Þeir fyrri fara fram á Kaffi Hljómalind en þeir síðari á Gamla Bókasafninu í Hafnarfirði. Auk þess koma Lay Low (26. maí) og Rökkurró (27. maí) fram en aðgangseyrir er einungis 700 krónur á hvora tónleika fyrir sig. Þess má geta að Mount Eerie og Woelv spiluðu einnig hér fyrir rúmu ári og vöktu þá mikla lukku þeirra fjölmörgu sem börðu þau augum. Það er óhætt að...

Rivulets - tónleikar (2 álit)

í Músík almennt fyrir 18 árum, 1 mánuði
RIVULETS Bandaríski tónlistarmaðurinn Nathan Amundson (Rivulets) er orðinn Íslendingum að góðu kunnur enda á leiðinni á fjórðu heimsókn sína hingað á 5 árum. Í þeirri fyrstu, árið 2001, tók hann m.a. upp stuttskífuna ‘Thank You Reykjavík’ í hljóðveri Rásar 2 er kom út á vegum BlueSanct útgáfunnar ári síðar. Þá kom Amundson jafnframt til Íslands haustið 2002 og lék á óopinberum lokatónleikum plötubúðarinnar Hljómalindar á Grand Rokk, ásamt Hudson Wayne, Drekka og Jessicu Bailiff. Þóttu þeir...

Fjórir fræknir... (4 álit)

í Músík almennt fyrir 18 árum, 5 mánuðum
TÓNLEIKAR MEÐ DREKKA, VOLLMAR, ÞÓRIR OG ALMAR Í KAFFI HLJÓMALIND, LAUGARDAGINN 19.11. OG Í SMEKKLEYSU PLÖTUBÚÐ, ÞRIÐJUDAGINN 22.11. Laugardaginn 19. nóvember n.k. munu bandarísku tónlistarmennirnir Drekka og Vollmar leika fyrir gesti Hljómalindar ásamt þeim Þóri og Almari. Drekka, sem er aukasjálf Michael Anderson eiganda BlueSanct útgáfunnar, ætti að vera orðinn mörgum tónlistaráhugamönnum kunnugur enda í fjórða sinn á jafnmörgum árum sem hann heldur tónleika hér á landi. Þrátt fyrir það...

Mount Eerie (Microphones) (1 álit)

í Músík almennt fyrir 19 árum, 1 mánuði
Sælt veri fólkið, Um miðjan mars mun bandaríski tólistar- maðurinn Phil Elvrum, er flestir þekkja sem The Microphones heiðra okkur með nærveru sinni og koma fram á nokkrum tónleikum undir nafninu Mount Eerie. Mun hann, ásamt konunni sinni sem kemur fram undir nafninu Woelv, leika á nokkrum tónleikum og hljóðar dagskráin svona: 17. mars í Frumleikhúsinu Keflavík ásamt Þóri. Húsið verður opnað kl. 20:00. 500 krónur og ekkert aldurstakmark. 18. mars í Smekkleysu ásamt Brite Light. Tónleikarnir...

Rivulets (10 álit)

í Músík almennt fyrir 19 árum, 5 mánuðum
BANDARÍSKI TÓNLISTARMAÐURINN RIVULETS ER EINN ÞRIGGJA SEM TROÐA UPP Í HELLINUM ÞANN 16. NÓVEMBER OG ER ÞESSI GREIN SKRIFUÐ AF ÞVÍ TILEFNI Ímynd hins dularfulla söngvaskálds, sem ferðast um með gítarinn sinn, er eins og sniðin utan um Nathan Amundson. Þessi hæfileikaríki tónlistarmaður, sem hefur fengið fjölmargar til að gapa af hrifningu, er fæddur í Denver, Colorado en flutti ungur til Alaska þar sem hann eyddi stærstum hluta bernsku sinnar. Á unglingsárunum gerði útþráin hins vegar vart...

Black Forest/Black Sea (1 álit)

í Músík almennt fyrir 20 árum
HLJÓMSVEITIN BLACK FOREST/BLACK SEA HELDUR TÓNLEIKA Á GRAND ROKK ÞANN 24. APRÍL: Nafnið Black Forest/Black Sea kemur flestum yfirleitt spánskt fyrir sjónir enda er þessi bandaríski dúett tæpast af sömu stærðargráðu og önnur bönd sem flykkjast til landsins nú á vormánuðum. Engu að síður ætti fólk endilega að gefa hljómsveitinni gaum því hún hefur fengið glimrandi dóma fyrir þær tvær breiðskífur sem hún hefur sent frá sér, m.a. hjá kröfhörðum gagnrýnendum Pitchforkmedia og The Wire. Pennarnir...

Tónleikar: The Iditarod (4 álit)

í Rokk fyrir 21 árum
Þó að Hljómalind heyri nú aðeins fortíðinni til er ekki þar með sagt að við, sem stóðum að baki henni, séum hættir öllum afskiptum af tónlist. Það er ljóst að það er enn grundvöllur fyrir því að halda tónleika hér á landi og því munum við reyna að halda áfram að standa fyrir hinum ýmsu uppákomum og kynna um leið tónlistaráhugamenn fyrir athyglisverðum hljómsveitum. Ein slíkra hljómsveita er hin bandaríska The Iditarod en hún mun leika á Grand rokk þann 1. apríl næstkomandi ásamt Kimono....

Miðasala á Godspeed (6 álit)

í Músík almennt fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Af gefnu tilefni vil ég minna á að miðasala á tónleika Godspeed You Black Emperor! er hafin. Einhver orðrómur um að miðinn kosti 6000 krónur hefur gert var við sig en það er sem séð RANGT - rétt miðaverð er 3500 krónur. Það er enn til slatti af miðum en við reiknum með að selja upp á mánudag/þriðjudag. Kær kveðja úr herbúðum Hljómalindar, Árni Viða

Ný plata frá Boards of Canada (19 álit)

í Raftónlist fyrir 22 árum, 3 mánuðum
2002 verður gott ár….af hverju? Jú, snillingarnir í Boards of Canada gefa út nýja breiðskífu sem lítur dagsins ljós seinni partinn í febrúar. Þeir hafa haft frekar hljótt um sig upp á síðkastið en dúkka síðan alltíeinu upp með plötu, sem fengið hefur nafnið ‘Geogaddi’ og er fyrsta breiðskífa þeirra í tæp fjögur ár eða síðan meistarastykkið ‘Music Has the Right to Children’ kom út hjá Warp….Jólin koma snemma í ár!

Söguleg stund (5 álit)

í Músík almennt fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Ég á eftir að minnast 6. desember sem dagsins þegar Skífan fékk loks á baukinn. Samkeppnisráð sektaði fyrirtækið 25 milljónir vegna brota sem annars hefðu styrkt stöðu Skífunnar enn frekar. Það var kominn tími til að segja stopp eftir að verðið á geisladiskum hækkaði uppí 2600 krónur og þó að þessi tvö mál séu óskyld held ég að tónlistaraðdáendur geti verið ánægðir. Það skyldi þó aldrei vera að Skífan myndi hækka verðið enn frekar til að borga milljónirnar 25? Við skulum bara vona að Jón...
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok