Ég vil bara benda á Rjúpnaskyttur(fyrrverandi) og yfirhöfuð alla þá sem fara á fjöll, þeir hafa kostað okkur skattborgara tugmiljónir í fáránleg útköll þar sem engu öðru er um að kenna en fávísi og/eða lélegum útbúnaði. Hvernig væri að byrja á því að rukka svoleiðis skussa áður en farið er að rukka þá sem að öllu jöfnu fara eftir öllum öryggiskröfum og rúmlega það. Rjúpna/Gæsa-skyttur, jeppamenn, gönguskíðafólk, göngumenn, ævintýrafólk - TAKIÐ TIL YKKAR SEM EIGIÐ.