Þessi nýja AIP virðist í fljótu bragði mun skipulagðri en gamla, hinsvegar, eins og fleiri hafa tekið eftir, verður erfitt að koma þessari möppu í töskuna, tala nú ekki um að fljúga blindflug með þessi kort hangandi á stýrinu, best að fara að venja sig við að trimma aðeins aukalega “nose up” ;-) Varðandi nýja sjónflugskortið, ég fékk að skoða prufu-útgáfu af því í fullri stærð, kort sem gert var til að safna athugasemdum, og lofar það mjög góðu um nýja kortið. pilot