Og ekki má gleyma (þó ég viti vel að þetta sé útlend ammælisdagbók) að: Sverrir Þór Sverrisson á ammæli 5.ágúst og: Auðunn Blöndal Kristjánsson á ammæli 8. júlí. Vildi bara leggja mitt af mörkum. :-)
Jamm, Danni er góður náungi og fínn tónlistarmaður. Með þeim betri, ef þú ert á annað borð að fíla þessa tónlist. En pældu í því að vera að rappa níu ára… ég væri til í að borga til að sjá Danna Bedd níu ára að rappa. En það er bara ég! Og Danni minn, bara, láttu þér batna… eða get well soon, Danny boy!
Ég ætla fyrst að segja að þetta sem einhver af ykkur vitleysingunum sagði: “LÚSÍFER ER SONUR SATANS EN HANN KEMST EKKI NÁLÆGT ÞVÍ AÐ VERA EINS ILL OG ÞÚ!!!!!!! ” og er hérna að þykjast vita allt um biblíuna, ég ætla aðeins að benda á að Lúsífer er annað nafn yfir Satan…ekki sonur Satans. Annars trúi ég persónulega ekki á Satan, en jæja. Síðan, hvernig getur einhver sem “kann testamentin aftur á bak og áfram og hefur stúderað biblíuna” verið svona ókristin og dæmt alla til helvítis fyrir ekki...
Hmm, ég hélt alltaf að það væri: Lately I've been Walking, walking in circles. Watching, <u>waiting for</u> something. Heal me, touch me, feel me, come, take me higher…
OK, til að þurfa ekki að hlusta á ykkur lengur ætla ég að upplýsa ykkur “elskurnar” eins og allir eru að kalla hvor aðra hérna… að allir sem eru 13-19 ára eru gelgjur, hvort sem þær sætta sig við það eða ekki. Og reyndar líka aðeins yngra og eldra fólk. Ég er gelgja….þú ert gelgja - sættið ykkur við það. B.t.w, þá er ekkert fyndnara en að horfa á tvær flaming gelgjur rífast, þannig að kannski ætti ég ekkert að vera að stöðva ykkur. Endilega, haldið áfram.
Er það? Ég hef bara heyrt að í gamla daga mátti ekki spila á föstudeginum langa, þá eiga allir að syrgja eða eitthvað þannig, það mátti varla tala saman. En á mínu heimili á jóladag þá höfum við alveg til klukkan sex til að gera okkur klár og setja lokahönd á jólaundirbúninginn. Síðan borðuum við möndlugrautinn sem forrétt og höfum ís í eftirrétt. Eftir að það er búið að vaska upp þá opnum við gjafirnar og ættingjar koma í heimsókn. Best dagur ársins.
Á-i! Slitnaði skottið af??? Er það hægt??? En ég er sammála, það þarf að passa upp í dýrin svo að litlu börnin komist ekki til að meiða þau. Litli frændi minn býr í Svíþjóð en kemur heim um jólin, mamma hefur rosalega áhyggjur af honum, ef kötturinn verður eitthvað stressaður, en ég hef mestar áhyggjur af kettinum!
Ég hef aldrei verið með skítkast áður en þetta er einum of, greinin og svörin sem hún og þessi vinkona settu hér inná, það má greinilega ekki segja sitt álit lengur, svo ég ætla bara að segja: DIE GELGJUR!!!!!!!
Frábær grein, en það er ótrúlegt hvað mér finnst e-ð erfitt mála mig af einhverju viti um augun, ég get bara ekki málað e-a línu með blýanti í kringum augun á mér! Reyni að nýta mér þessa grein.
ok, þetta er bara krípi hvað maður getur vitað mikið um mann sem maður hefur að aldrei talað við…. þetta er bara partur af því sem ég gæti þulið upp um þennan mann, læt það bíða betri tíma. :-)
Mig langar líka að fara að læra bogfimi, ég sendi þeim sem er með þessa síðu (linkurinn í svarinu fyrir ofan) oft tölvupóst með alls konaar spurningum en þau svöruðu mér aldrei…. Er ekki líka mikið mál að fá boga?? Ég las einhverjar reglur um skotvopn frá lögreglunni og þetta virtist vera voða vesen að fá leyfi.
Hmmm, mig dreymdi mjög álíkan draum fyrir nokkru, dreymdi að mamma væri með krabbamein og dó og þegar ég vaknaði var ég hágrátandi. Ég efast samt stórlega um að þetta þýði eitthvað slæmt. Ég held að það detti inn að draumarnir okkar eiga að leiðbeina okkur en þá verðum við bara að fara eftir innsæi okkar og hvernig okkur leið í draumnum, í staðinn fyrir að fara eftir e-i bók sem segir að ef manni dreymir vatn þá verði maður voða ríkur. Ég meina, flestum hefur dreymt vatn…. ég er ekkert rík. En þú?
híhí, ég leigði hana með þér, silly billy…. Þetta er einn besti (og sætasti) leikari sem ég veit um. P.S. mér finnst hann ekkert svona skemmtilegur leikari bara út af því að hann er sætur.. það er alveg satt!
Bravo, meistari sillymoo. Gaman að sjá að þú ert alltaf jafn virk hér á þessu áhugamáli sem ég kem reyndar aldrei á nema til að lesa sögurnar þínar, en það kemur þessu öllu saman ekkert við. Anyway… mjög gott hjá þér en mundu bara að ekki er kálið sopið þó í ausuna sé komið!
Ég get svo svarið það. Eftir nokkur ár verða allar stelpur alveg nákvæmlega eins og þú þarft að setja merkimiða á vinkonur þínar til að þekkja þær í sundur. Copy/paste barbídúkkur sem mála sig svo mikið í framan til að líta út eins og þeim er sagt að líta út eru að drepa mig. Þegar þessar stelpur taka af sér meikið þekkir maður þær varla. Án málningar líta þær síðan illa út af því að maður er svo vanur að sjá þær eins og e-r heilhveitis poppstjörnur þannig að þær verða alltaf að vera...
Hafðu bara smá þolinmæði. Ég reyndi örugglega sex sinnum að ná þessu lagi á kazaa en öll skiptin spilaðist bara byrjunin og stoppaði síðan en ég hélt áfram að reyna og var bara ég sjálf og þá náði ég því að lokum. :-)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..