Í gærkvöldi um 6-leytið fórum við þrjú upp í hesthús til að undirbúa komu hestana, setja saltsteina og svona, en þeir koma á hús á morgun og er mikil tilhlökkun í gangi.. Við vorum eitthvað að dunda okkur við að setja drasl í bílinn þegar kona kemur keyrandi og gerir sig líklega til að tala við okkur.. Við förum að bílnum og konan spyr okkur hvort við söknum nokkuð jarps hests, við áttuðum okkur ekki alveg á hvert hún var að fara með þetta, hvort hún hefði fundið lausan hest eða hvað.. en þá...