Þú kvartar undan lengdinni. Ég ætla að gamni að segja þér smá sögu. Einu sinni voru Þorgeir í Gufunesi og Jón í Skollagróf, þekktir hestamenn á fyrri tíð, á leið upp í Gufunes þar sem Þorgeir ætlaði að sýna Jóni nokkur tryppi. Þegar þeir komu í Grafarvog hafði Jón orð á því hvað vegurinn væri óskaplega langur. “Já,” sagði Þorgeir þá, “ef hann væri ekki svona langur þá myndi hann ekki ná alla leið.” Eins getur verið með greinar. Þær mega ekki vera svo stuttar, að ekki náist að segja það sem...