Eins og kom fram í greininni þá var keppnin ekki hafin og því ótímabært að segja hvað “borðspilið” væri. Núna er hún hafin og ég get sagt ykkur að umræddur leikur er Othello. Ég sendi .zip skrá með öllu tilheyrandi, aðalforriti og dæmi um keppnisforrit, vistþýtt fyrir windows og linux auk kóða, og allar nauðsynlegar leiðbeiningar á kóðahornið undir Delphi (þetta er skrifað í pascal). Þið verðið víst að bíða eftir því að þetta verður samþykkt á bodvarsson.com. Ég tek það sérstaklega fram að...