Ég er frekar noob í Linux. Er með SuSE 8.1

Er að reyna að komast á netið via 56kbps slo-mo.
Nota Kppp, allt rétt stillt (99,9% viss) í modem/connection properties.
Gengur illa, módemið hringir eðlilega (hljómar svipað og undir Windows), en svo deyr Kppp skyndilega og ég fæ enga almennilega skýringu á því. Fæ bara: “pppd died unexpectedly, sorry can´t help you!”.

Með þessari meldingu kemur: exit code 2.

Ég er búinn að leita mikið á netinu að upplýsingum varðandi exit code 2, en finn voða lítið og lítið virðist um svör, (að vísu eru ca. 5 vikur síðan ég leitaði síðast að svörum, en stundum fær maður nóg og hvílir sig bara á svona böggi í x tíma.

Veit einhver eitthvað um þetta?
Getur verið að ég þurfi að finna eldi útgáfu af Kppp?

Með fyrirfram fökk.
yamit