Ég var að velta því fyrir mér hvort einhver ætti vírus sem eyðir öllum save skrám í Championship Manager 4 en engu öðru.
Hljómsveitin mín er óstarfhæf vegna ódrepandi CM4 fíknar og amk tveir hljómsveitarmeðlimir eru orðnir illilega veruleikafirrtir, annar þeirra á góðri leið með að spila frá sér kærustuna og hinn má ekki vera að því að leita sér að vinnu, hvorugur þeirra kemst nokkurntíman á æfingar lengur.
Á einhver CM4 veiru sem ég gæti emailað þeim og bundið enda á þennan hryllilega sjúkdóm með?<br><br>“The King is back and its like he never went away”
Gítarar = Gibson Les Paul Standard, Fender Jazzmaster. Aria Einhverfjandinn.