Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kartöflutilraun (9 álit)

í Skóli fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Á einhver niðurstöður úr kartöflutilrauninni sem er held ég kennd í langflestum NÁT103 áföngum? Maður á að láta kartöflubita liggja í sykurlausn í sólarhring og þá á eitthvað að gerast, flæði eða osmósa eða eitthvað í þá áttina. Ég held nefnilega að mitt svona sé eitthvað misheppnað, og langar að bera það saman við niðurstöður einhvers annars.

Þjónustuaðili United (2 álit)

í Tölvur og tækni (gamla) fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Hver er þjónustuaðili fyrir United?

Kvikmyndaforrit (5 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Halló, ég hef mikinn áhuga á að búa til stuttmyndir með svona leirköllum. Hef búið til nokkrar, og þá notaði ég bara stafræna myndavél og tók eina og eina mynd og setti svo saman í Windows Movie Maker. Málið er að WMM er algjört drasl forrit, t.d. er ekki hægt að hafa hvern ramma styttri en 1,20 sek sem er eiginlega fáránlega langt. Getiði mælt með einhverjum öðrum forritum, sem er helst hægt að fá frítt á netinu?

Carlo Rossi California Rose (11 álit)

í Djammið fyrir 17 árum, 7 mánuðum
http://vefbud.vinbud.is/cgi-bin/vinbud.storefront/450c49a70191c00c2740c104d085067c/Product/View/06707 Hefur einhver smakkað þetta? Er það gott? Er að leita mér að einhverju nýju áfengi öðru en bjór, er komin með ógeð á öllum þessum vodkablöndum.

Blogger spurning (6 álit)

í Blogg fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Hérna, hvernig gerir maður svona undirsíður á Blogger? Ég er algjör noob á þessu.

Rugla í útlendingum (9 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 7 mánuðum
Hahahaha, mér finnst það svo fyndið. Einsog einhver gerði á þessu Rockstar spjalli (það er linkur á forsíðunni inná þann þráð þar sem verið var að tala um Borgarfjörð eystri). Ég hélt ég myndi grenja úr hlátri :') Það var einhver að setja myndir inn þarna og rugla um að Magni ætti heima í Alþingishúsinu og að Bláa lónið væri sundlaugin hans og eitthvað. Einn útlendingurinn var alveg “vá, flottur garður hjá honum…”. Mér finnst þetta svo fyndið! Mér finnst líka fyndið þegar útlendingar spyrja...

Hvaða lag? (3 álit)

í Músík almennt fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hvaða lag er þetta í Morgunblaðsauglýsingunum? Eitthvað “Ch ch ch changes…”

Vesen með BLOGGER (4 álit)

í Blogg fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Blogger er með stæla við mig. Ég reyni að setja inn ný blogg og publisha, en þau koma ekki inn á síðuna. Þar sé ég bara eldri bloggin, en þegar ég fer í þar sem maður skrifar bloggin sé ég samt bloggin sem koma ekki inn. Ef þið skiljið. Getur einhver hjálpað mér? Þetta er bögg.

Hljóðnemar (5 álit)

í Hljóðfæri fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Bróður minn vantar tvo hljóðnema. Þeir mega helst ekki kosta meira en 30.000 kall samanlagt. Helst Shure. Við erum búin að skoða heimasíðurnar hjá helstu hljóðfæraverslununum, þ.e. Tónastöðinni, Hljóðfærahúsinu og Tónabúðinni, en finnum ekki neitt þar. Nema einhverja dauða linka og drasl. Eitthvað sérstakt sem Hugarar mæla með?

Earth (6 álit)

í Metall fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Er það eitthvað sem þið mælið með? Var að skoða eitthvað um Sunn O))) og sá að þeir dýrka þessa hljómsveit. Hef aldrei heyrt um Earth áður, er þetta eitthvað þess virði að tékka á?

Spurning... (4 álit)

í Vísindi fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ein spurningin í núverandi spurningakeppni vefst eilítið fyrir mér. Að því ég best veit hefur aldrei verið talað um “Suðurlandsskjálftann”, heldur bara Suðurlandsskjálftana sem ríða reglulega yfir Suðurland… Getur spurningahöfundur skýrt þessa spurningu nánar út fyrir mér, það koma svona tíu jarðskjálftar til greina og ég man ekki beint dagsetninguna á þeim öllum…

Vesen :/ (8 álit)

í Black and white fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Jæja, ég er búin að installa leiknum, og þegar ég fer í New Game koma einhverjir svona litlir kallar, einn með skegg og hinn rauður með vængi eða eitthvað. En þá fer hann bara að lagga í drasl! Augun á gaurunum eru eitthvað úti í loftinu bara, og þetta er allt svo skíthægt að það tekur hálftíma fyrir þá að gubba útúr sér setningu. Að auki ofhitnar tölvan mín svo mikið að ég brenni mig. Hvað haldiði að sé að? Er eitthvað sem ég þarf að uppfæra eða breyta í tölvunni minni? Mig langar svo að...

Enginn klósettpappír (9 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Þau ykkar sem stunda erlend spjallborð hafa mjög líklega tekið eftir svona spamm skilaboðum sem koma öðru hverju. Þar er í flestum tilvikum verið að auglýsa annað hvort klám eða lyf. Í sumum þessum skilaboðum eru ansi skemmtilegar sögur, og ætla ég að þýða eina söguna og segja ykkur hana. Dægradvöl dagsins semsagt. Það var einusinni maður, sem var á leiðinni í partý. Hann var frekar nýbúinn að borða þegar hann lagði af stað með vini sínum. Þeir voru hálfnaðir á leiðinni þegar hann sagði: “Vá...

Mér leiðist! (6 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Vá, ég er í vinnunni og það er ekkert að gera! Er að leysa vin minn af(hann er “veikur”) í byggingavörubúð og ég hef aldrei gert neitt jafn niðurdrepandi. Sit bara hérna og horfi útí loftið. Reyndar er tölva hérna, en ég þori eiginlega ekki að fara inná neinar síður. Ég er bara búin að afgreiða þrjár ljósaperur, eina skinnu og eina ró í dag! Talandi um rólega búð… úff. Bætt við 18. ágúst 2006 - 10:22 Og svona í leiðinni, það var einhver stelpa/kona að labba inn í búðina. Ég býð góðan dag, og...

Footballers' wifes (5 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Hvernig varð Roger eiginlega blindur? Það hefur farið alveg framhjá mér.

Hvernig bíl? (7 álit)

í Bílar fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Jæja, ég er líklegast að fara að kaupa mér bíl á næstu mánuðum. Hann þarf ekki að vera stór, hann þarf ekki að vera neitt rosalega kraftmikill. Ég þarf samt að geta keyrt á honum í snjó úti á landi. Hann má ekki vera of gamall, helst ekki eldri en '96. Hann þarf að vera með geislaspilara. Hann þarf líka að vera skráður fimm manna. Ég veit ósköp fátt um bíla, og vantar smá aðstoð. Eru einhverjir sérstakir bílar sem þið getið mælt með? Og hverju mælið þið ekki með? Og já, ég geri mér grein...

Vákort (17 álit)

í Fjármál og viðskipti fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Getur einhver útskýrt fyrir mér nokkurnveginn hvað vákort eru?

Harður diskur (11 álit)

í Vélbúnaður fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég þarf utanáliggjandi harðan disk. Helst sem fyrst. http://www.tolvuvirkni.net/ip?flo=product&inc=view&itembas=1&changeit=/1839.0.0.0.1.&id_top=1585&id_sub=1839&viewsing=ok&head_topnav=Skilm%E1lar Haldiði að þessi sé góður? Ég veit nokkurnveginn ekkert um tölvubúnað, þannig að vinsamlegast hafið svörin núbbaproof. Og annað, ég finn hvergi hvernig maður tengir hann við tölvuna. Haldiði að þetta sé ekki alveg örugglega USB bara? Ég er nefnilega ekki með Firewire. En já, hann er allavega að fá...

Hvar fæ ég þessar myndir? (7 álit)

í Kvikmyndir fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ef einhver getur sagt mér hvar ég get fengið á dvd seríurnar frá BBC “Walking with…” væri það vel þegið. Þetta voru fjórar mismunandi seríur, Walking with dinosaurs, Walking with Cavemen, Walking with Monsters og Walking with Beasts. Með fyrirfram þökkum.

Má ég vera vond? (16 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Fyrir korteri hringdi einhver Guðrún í mig frá Hótel Radisson SAS og var að lýsa því yfir mér hvað hún væri “blind-hauga-full” í vinnunni. Ég reyndi að grípa fram í fyrir henni með “Hver er þetta?” og þá svaraði hún með “Þekkirðu mig ekki?” sem ég neitaði, og þá hélt hún bara áfram að blaðra. Loksins tókst mér að koma henni í skilning um að mér væri vel sama hvað hún væri full í vinnunni. Hún hringdi meiraðsegja aftur í mig svo. Ohh, heimska fólk. En annars… er ekki málið að vera geðveikt...

Lagg? (11 álit)

í Black and white fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Var að panta mér leikinn á netinu, kemur líklegast á mánudaginn eða þriðjudaginn, en núna var verið að segja mér að leikurinn laggi frekar mikið, og líka í öflugum tölvum. Er það rétt? Vonandi afsakið þig fáfræði mína á þessu sviði.

Könnunin (17 álit)

í Músík almennt fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ein spurning. Hvað í ósköpunum er dauðarokk? Önnur spurning. Hvar er “Hlutlaus”?

Episode IV (1 álit)

í Sci-Fi fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Ég og brói erum í djúpum pælingum hérna. Þegar það var gefið út fyrstu Star Wars myndina, þ.e. A New Hope, var þá strax búið að ákveða að hún ætti að vera númer fjögur í röðinni og að hafa þetta allt í ruglaðri röð? Eða átti hún kannski fyrst að vera bara fyrsta myndin af þrem, og svo var ákveðið að bæta við byrjuninni?

Brennið þið vitar (14 álit)

í Ljóð fyrir 17 árum, 8 mánuðum
Mér finnst þetta svo fokkflott lag og textinn er alls ekki síðri. Geðveikt dramatískt og íslenskt eitthvað. Brennið þið vitar eftir Davíð Stefánsson. Brennið þið, vitar. Hetjur styrkar standa við stýrisvöl, en nótt til beggja handa. Út við svarta sanda, út við svarta sanda, særótið þylur dauðra manna nöfn. Brennið þið, vitar. Hetjur styrkar standa við stýrisvöl, en nótt til beggja handa. Lýsið hverjum landa, lýsið hverjum landa, sem leitar heim og þráir höfn. Brennið þið, vitar. Lýsið...

Nýtt númer? (9 álit)

í Farsímar fyrir 17 árum, 9 mánuðum
Ég týndi símanum mínum í nótt, svo ég var að spá í að fá mér bara annan (samt var hinn nýr og fullkominn). Ein spurning þá, er möguleiki á að ég geti fengið sama númerið aftur? Er hjá Símanum. Og annað, ef þið vitið um einhvern sem er að selja notaðan Sony Ericsson Z520i ódýrt, endilega látið mig vita. Mig langar bara í eins síma og ég átti. Með fyrirfram þökk!
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok