Jæja, ég er búin að installa leiknum, og þegar ég fer í New Game koma einhverjir svona litlir kallar, einn með skegg og hinn rauður með vængi eða eitthvað. En þá fer hann bara að lagga í drasl! Augun á gaurunum eru eitthvað úti í loftinu bara, og þetta er allt svo skíthægt að það tekur hálftíma fyrir þá að gubba útúr sér setningu. Að auki ofhitnar tölvan mín svo mikið að ég brenni mig.

Hvað haldiði að sé að? Er eitthvað sem ég þarf að uppfæra eða breyta í tölvunni minni? Mig langar svo að spila þennan leik, en nenni ekki að standa í einhverju svona veseni…