Þau ykkar sem stunda erlend spjallborð hafa mjög líklega tekið eftir svona spamm skilaboðum sem koma öðru hverju. Þar er í flestum tilvikum verið að auglýsa annað hvort klám eða lyf. Í sumum þessum skilaboðum eru ansi skemmtilegar sögur, og ætla ég að þýða eina söguna og segja ykkur hana. Dægradvöl dagsins semsagt.


Það var einusinni maður, sem var á leiðinni í partý. Hann var frekar nýbúinn að borða þegar hann lagði af stað með vini sínum. Þeir voru hálfnaðir á leiðinni þegar hann sagði: “Vá maður, ég verð að fara og kúka.” Þeir keyrðu útaf hraðbrautinni, fundu einhverja afskekkta bensínstöð og maðurinn fór inn og gerði þarfir sínar. Þá tók hann alltíeinu eftir skilti, þar sem á stóð: “Enginn klósettpappír… þú verður að skeina þér með tveimur fingrum, stingdu þeim svo í þessa holu og þeir munu verða sleiktir hreinir fyrir þig.”

Ja, hann hafði fáa valkosti, svo hann skeindi sér með fingrunum og stakk þeim í holuna. Alltíeinu finnur hann að einhver með tvo múrsteina mölvar á honum fingurna.

Maðurinn öskraði af sársauka og sleikti fingurna á sér.