Nei alls ekki. Setningar mega alveg byrja á samtengingum og er það gert í hverri einustu bók íslenskra rithöfunda. Það gildir hinsvegar annað um málsgreinar.
Já þær endast alveg, þú geymir þær bara í sérstöku boxi með linsuvökva. Bætt við 22. október 2007 - 21:40 Eða… kannski fer það eftir tegundum. Má með mínar. Og svo eru líka til daglinsur sem maður hendir bara á kvöldin áður en maður fer að sofa.
Aaahh, þetta er ekkert rosalega sniðugt gat, fólk lendir oft í þvílíku veseni með svona. Mjög miklar líkur á sýkingu eða að líkaminn hafni þessu. Held að þetta heiti ekkert sérstakt, þetta er bara handargat á milli þumals og vísifingurs.
Ég stóð ekkert fyrir utan bílinn í marga klukkutíma… fór bara inn og beið eftir að hann þiðnaði. Og ég skil ekki hvernig strætó virkar og á ekki strætókort.
Hvernig blandar maður þetta í tappann? Á maður að nota tappann sem mælieiningu og blanda þessu saman í skál eða einhverju? Og hvað gerir maður svo þegar það er búið að sótthreinsa? Það má ekki hella vetnisperoxíði í niðurföll. Ég hef aldrei skilið þetta.
Hah, já ég hef lent í því að þurfa að skríða inn um skottið. Nema ég virðist ekki lengur geta opnað skottið með lyklinum, frekar en farþegahurðina. Bara eitthvað bilað :P
Það eru nú ekki allir sammála um hversu áhrifaríkt þetta er. Þetta bara stríðir svo gjörsamlega gegn skoðunum mínum. Ég styð ekki skottulækningar af neinu tagi. Þessi nuddtækni gæti svosem alveg virkað, en á meðan þetta er tengt við að “jafnvægisstilla orkustöðvar líkamans” kem ég ekki nálægt þessu.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..