Kvöldið. Ég var að spá í, hvar get ég fengið hvítar linsur (þar sem aðeins augasteinninn sést) sem endast í einn dag eða svo, og hvað kosta þær? Fæ ég þetta bara í venjulegum gleraugnabúðum, og þarf ég að hafa verið með linsur einhverntímann til að geta fengið þær (Er með fullkomna sjón og aldrei notað gleraugu.)

Og já, hvað tekur langan tíma að fá þær, fæ ég þær á staðnum eða..? Þarf þær fyrir hrekkjavökuballið í MH (31. okt.)

Kannski hefur svona spurning komið áður, en ég er of þreytt til að leita mánuði aftur í tímann hér á Huga.

Með fyrirfram þökkum,
Hundam.



P.s. Hver fílar Hundam (fyrir þá sem vita hvað það er.) :D

Og annað; Ef maður ætlar að vera vampíra, með áberandi augu (málningu og ^ linsur) hvort er flottara að vera með dökkar varir eða í sama ljósa tóninum og húðin er með blóði lekandi niður? Var nefnilega að spá í hvort það væri allt of mikið af áberandi hlutum ef ég er hvít í framan með svarta augnmálningu og dökkar varir.
Could I Wham! my Oingo Boingo into your Velvet Underground?