Svona er þetta víst, allt kostar peninga. Og einsog var minnst á, þá ef það stendur ekkert í samningnum um að dl sé bara rukkað utanlands, þá geta þeir rukkað fyrir allt. Annað finnst mér pínulítið skrýtið, að ykkur finnist svona sjálfsagt að allt innanlands sé frítt, og jafnvel minnist á kæru eða þess háttar. Fyrir nokkrum árum (áðuren 56k modemin komu á markað) þá byrjaði isnet að rukka fyrir alla traffíc, og þjónustuaðilar byrjuðu að rukka kúnnana sína. Þetta gekk reyndar ekkert eftir, en...