Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

muggur
muggur Notandi frá fornöld 170 stig

Rokkárið 2003 (42 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Það fer að líða að áramótum og nú væri gaman að fá smá fréttir hljómsveitunum sem eru að fara að senda frá sér efni á nýju ári. Ég hef heyrt að Maus platan komi í febrúar, búinn að hlakka persónulega mikið til að fá hana í hendur. Botnleðja í einhverjum hugleiðingum og margir fleiri…en hvað með ykkur? Hvað eru þið að bralla? Hvernig leggst rokkárið í ykkur? Um leið vill hljómsveitin Ókind óska ykkur gleðilegrar hátíðar og farsældar í rokkinu á nýju ári! - Ingi Ókind Steini Ókind Óli Ókind...

Rokk - Staðan í dag... (12 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 6 mánuðum
Fyrst og femst langar mig að vekja upp smá umræðu með þessari grein um stöðu rokksins hér á landi og hvernig gangi hjá hinum ýmsu böndum að koma sér af stað og á framfæri. Leiðin útúr bílskúrnum er frekar þyrnum stráð einsog staðan er í dag…ef hljómsveitir hafa þá bílskúr til að vera í. Töluverður skortur er á æfingahúsnæði og hlítur það að hamla hinum ýmsu upprennandi tónlistarmönnum að sýna hvað í sér býr. Ég hef heyrt þess dæmi að góðar sveitir hafi leysts upp eftir að hafa misst húsnæði...

Innbrot í húsnæði Výnils, Ókindar og Down To Earth (50 álit)

í Rokk fyrir 21 árum, 7 mánuðum
Brotist var inn í húsnæði okkar mánudagskvöldið 30. september. Grófur listi af því sem var stolið: 2 x JBL Eon hátalarar. Mackie Mixer. Roland Digital Upptökutæki. Fullt af gítareffektum. Bassaformagnari/Distortion Fender Telecaster Litur: Sunburst,rauðbrúnn. Annar gítar (kem með nánari upplýsingar síðar) Marshall Valvestate haus, bilaður. Ef þú hefur einhverjar upplýsingar hafðu þá samband við mig. Ingi Ókind: 8499521 Email: muggur10@hotmail.com

Skemmtileg effecta "lineup". (11 álit)

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 4 mánuðum
Strengja effectar geta verið ansi skondnir og er hægt að púsla saman á ýmsa vegu. Mig langaði til að segja ykkur frá mínu “lineuppi” ef svo mætti kalla og kannski fá smá frá ykkur um ykkar stillingar og púsl. Mitt lineupp er eftirfarandi: (í röð frá því þar sem gítarinn tengist inní fyrsta effect) Boss Chromatic Tuner sem er snilldargræja með hátt “refresh” (maður er frekar snöggur að stilla og er nákvæmur í þokkabót) þaðan inní DOD Grunge distorsion sem er ágætt til síns brúks í grunge...

Marshall og snilldin sem fylgir þessum vörum! (6 álit)

í Hljóðfæri fyrir 22 árum, 9 mánuðum
Ég komst að enn einni snilldinni við Marshall í gær. Ég var á hljómsveitaræfingu og í einhverju tóminu fór ég að fikta í magnaranum mínum og skoða möguleikana sem hann býður uppá. Magnarinn minn er Valvestate týpa með 2*16“ keilum, góður magnari en vantar samt þetta ”low end" thingy þeas þennan djúpa þétta tón. Í framhaldinu ákvað ég að tengja vintage 1960 box sem var á staðnum við magnarann, hafði allt í stereoi og viti menn ég hef aldrei heyrt annað eins. Magnarinn var að þola þetta það...

Kuai - Næstir í röðinni... (0 álit)

í Músík almennt fyrir 22 árum, 10 mánuðum
Í þessum skrifuðu orðum er ég að hlusta á lagið Andefni eftir hljómsveitina Kuai, þið getið nálgast það á www.rokk.is. Ég skellti mér á tónleikar í laugardalshöllinni til þess eins að berja þá augum og var sú ferð virkilega peninganna virði. Önnur eins snilld og frábær spilamennska er fáséð hér á landi, tónlistin minnir í senn á hve rokkið getur verið ofuröflugt og að það sé hægt að brjóta sig úr hinu leiðinlega mainstreami svokallaða. Kuai eiga mikið lof skilið og eiga þeir alveg örugglega...

Frelsum Palestínu - Tónleikar í hátíðarsal MH. (13 álit)

í Rokk fyrir 23 árum
Greinilegt var að mikil vinna var lögð í þessa tónleika, þeas í sambandi við fjármögnun á hljóðkerfi og þess háttar. Tónleikarnir byrjuðu rólega, Skurken leiddi fólkið í göngu um fjöll ambient tónlistar með ágætis árangri en þó voru smávægileg vandræði með hljóðkerfið. Skurken skilaði sínu vel og fær mikið lof frá mér fyrir að halda manni algjörlega allan tímann. Næst á svið var hljómsveitin Múm. Þau brilleruðu algjörlega en enn og aftur voru smá vandræði með kerfið. Að mínu mati á Múm eftir...

Hresstu uppá magnarann þinn! (2 álit)

í Hljóðfæri fyrir 23 árum
Já ég er einn af þessum hardcore Marshall aðdáendum og langar til að benda ykkur á snilldarhugmynd. Ég kíkti á Marhall heimasíðuna (http://www.marshallamps.com) og skoðaði innsendar myndir þar sá ég nokkra málaða magnara. Ég tók mig til og tók í sundur Valvestate haus sem var orðinn nokkuð sjúskaður og spreijaði hann bláan, svona blásansjeraðan. Það eina sem þarf að gera er að kippa magnaraunitinu úr með því að skrúfa skrúfurnar ofaná, taka síðan rifflaða spjaldið framanaf sem er fest með...

Hafa gæði Músíktilrauna Tónabæjar dalað? (24 álit)

í Rokk fyrir 23 árum
Mig langar að spyrja tónlistarfíklana hérna hvort þeir seú sömu skoðunar og ég að gæði hafi minnkað all verulega í músíktilraununum? Ég sá aðeins tvær hljómsveitir á úrslitunum sem höfðu eitthvað til brunns að bera að mínu mati, voru það hljómsveitin Anonymous og sigursveitin Andlát. Hinar sveitirnar voru flestar komnar útí þetta “wannabe” hardcore og voru að reyna að fylgja Mínus eftir. Það væri gaman að fá smá álit á þessu.
  • Síður:
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok