Kuai - Næstir í röðinni... Í þessum skrifuðu orðum er ég að hlusta á lagið Andefni eftir hljómsveitina Kuai, þið getið nálgast það á www.rokk.is. Ég skellti mér á tónleikar í laugardalshöllinni til þess eins að berja þá augum og var sú ferð virkilega peninganna virði. Önnur eins snilld og frábær spilamennska er fáséð hér á landi, tónlistin minnir í senn á hve rokkið getur verið ofuröflugt og að það sé hægt að brjóta sig úr hinu leiðinlega mainstreami svokallaða. Kuai eiga mikið lof skilið og eiga þeir alveg örugglega bjarta framtíð í “bransanum” því lítill fugl hvíslaði því að mér að breiðskífa væri á leiðinni. En hvað sem öðru líður þá er málið að ná sér í lagið andefni með Kuai á rokk.is.

Muggsterinn