Það fer að líða að áramótum og nú væri gaman að fá smá fréttir hljómsveitunum sem eru að fara að senda frá sér efni á nýju ári.
Ég hef heyrt að Maus platan komi í febrúar, búinn að hlakka persónulega mikið til að fá hana í hendur. Botnleðja í einhverjum hugleiðingum og margir fleiri…en hvað með ykkur? Hvað eru þið að bralla? Hvernig leggst rokkárið í ykkur?

Um leið vill hljómsveitin Ókind óska ykkur gleðilegrar hátíðar og farsældar í rokkinu á nýju ári!

-

Ingi Ókind
Steini Ókind
Óli Ókind
Biggi Ókind

“…úlfaldatær, úlfaldatær, ég vilekkivilekki þurfa' að sjá þær… ”
Ókind - Hr. K - Heimsendi 18