Trú er bara þetta eilífa þrætuepli sem menn hafa reynt að komast að einhverri niðurstöðu í, en eins og maðurinn sagði, þó ekki orðrétt, “ helsti galli mannsins er að halda að það sé alltaf eitthvert upphaf”. Burtséð frá þessum ágætis frasa þá tel ég að trú sé ekki bara eitthvað sem þú finnur bara í hjartanu þínu, falleg hugsun þó, en ég tel sem svo að trú sé einnig mjög háð þeirri menningu sem þjóðfélagið flokkast undir. Öll höfum við mismunandi túlkanir á guði og þar af leiðandi væri ekki...