Ég var áðan að keyra Reykjanesbrautina “þjóðbraut dauðans” og sá þá við vegkantinn skilti upplýst með örugglega 20 friðarljósum og á þessu skilti stóð einfaldlega “tíminn er mannslíf”. Það er rosalega tilkomumikið að sjá þetta og mun áreiðanlega vekja marga til umhugsunar. Ég bara dáist að öllum þróttinum í fólkinu sem stendur að þessu… þetta er það sem þarf. Fólk hefur fengið nóg.