ég var búinn að gleyma einni frábærri sögu, ég átti fyrir nokkrum árum ansi svalan Civic 4gra dyra, með öllu kittinu, áli, filmum og fl. og þá voru bara 3 bílar á götunum sem voru með þessu kitti, en allavega, ég er að fara í Olís í álfheimum og legg bara fyrir framan stöðina fyrir aftan eld gamlan subaru, ég fer inn og sé gamlan kall setjast í subaruóinn, svo fer ég að hugsa, “djöfull held ég að kallinn sé með hann í bakkgír” og jú, viti menn, hvíta ljósið kviknar á hálfhrunum stationinum...