Hvernig er það með ykkur Huga-fíklar er enginn hugi í ykkur?

Á ekki að reyna að keppa í sumar og gera sér glaðan dag?
Til eru fullt af flokkum fyrir mis útbúna bíla!!!

Menn þurfa ekkert að mæta á ráslínu á Sunny gti með remus pústi og stilla upp við 500 hestafla Camaro!

Til er sérstakur GT flokkur fyrir GT bíla og svo er líka hægt að keppa í bracket en í bracket er ræst á mismunandi tíma!!!!

Því fleiri því meira gaman!

Ef einhver áhugi er af ykkar hálfu þá endilega látið ljós ykkar skína og spyrjið?

Svo eru haldnir fundir í félagsheimilinu alla fimmtudaga og byrja þeir kl:20.00