Það getur vel verið að flugkennarar séu í meirihluta þegar sótt er um störf, en það er ekki rétt að þeir hafi betri aðgang af flughermum en aðrir, allir geta bókað herminn (nýja & gamla), enginn forgangur fyrir kennara þar. Kennslutímar eru bara af hinu góða, eins og einhver sagði áðan, þá eru kennslutímar þroskandi fyrir einstaklinginn. Það er svo flugrekandans að meta hvern umsækjana fyrir sig eftir sínum reglum, hverjar sem þær eru svo, en það er allt annað mál.