Það var bæði, ef ég man rétt :) Black lodge var náttúrulega aðallega til umræðu því það var þar sem djöfullinn Bob hélt sig, staðurinn sem Windom Earle ætlaði að finna. Mig minnir endilega að Coop hafi fundið White Lodge líka en ég þori þó ekki að hengja mig upp á það. Hvort tveggja, White Lodge og Black Lodge kemur a.m.k. upphaflega úr tíbetskum þjóðsögum/trúarbrögðum, þar sem Hvíta bræðralagið stendur fyrir hina andlegu upprisnu meistara en Svarti kofinn stendur fyrir hina gömlu, illu,...