Ég á silky terrier sem er algert krútt og mikill kúruhundur. Ofboðslega húsbóndahollur og auðvelt að kenna honum hlýðniæfingar. Hann er stundum frekur á mig og vill hafa mig út af fyrir sig, þannig að maður verður að vera mjög ákveðin við hann að láta hann vita að hann sé neðstur í goggunarröðinni. Hann opnar sjálfur hurðina á búrinu sínu með loppunni, dansar stundum fyrir mig á 2 fótum, snýr sér í hringi og margt annað. Hann gerir allt fyrir bitann. Hann fær nú bara þurrfóður hjá mér, en ég...