Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

loom
loom Notandi frá fornöld 140 stig
Áhugamál: Quake og Doom, Deiglan

Re: loom: ??????????????????????????????????????????????????????????????

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Jámm, ég ætla nú ekki að fara að öskra á þig otur, því að ég veit hvað þú átt bágt, og þetta comment sannaði það. Þessi gamla korkamenning byggðist upp á fásinnu fólks. Þetta _var_ aldrei gott, og _verður_ aldrei gott. Korkar, eru inaccessable kjaftæði, og ömurleg leið til að tjá sig um hluti. Mér finnst greinahlutinn hér á huga mun betri en þessir asnalegu korkar. Þeir voru gallaðir frá a-ö, og það eina sem fólk gerði á þessum korkum (og sérstaklega þú) var að rífast við fólk, eins og þú...

Re: borð.a.tmp.splu

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Það er vegna þess að Quake2 er svo léilegur, að það þýðir ekkert að betrumbæta möppin =] Nei nei… improvment is good…

Gud:

í Deiglan fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Gud: þú sýnir sérlega mikinn þroska. Cheers.

Re: CPM1a

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Æj ég veit það ekki. Mér finnst þetta mad útlit, en þetta er ekkert jdm8a… Þetta er eiginlega svona bæling á jdm8a :) Og þessi hreyfing á ya boðar illa gæfu…það sem var gott við gamla ya er að maður gerði sjálfan sig vulnurable fyrir hinum meðan maður náði í hann, og þar með er þetta borð mun jafnara, og erfiðara að spila…yaknow? :)

Re: Gömlu korkarnir!

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Gömlu korkarnir voru ljótari og léilegri. Ástæðan fyrir því að fólk er hætt að korka, er einfaldlega sú að það er búið að átta sig á því, að irc er mun sniðugra. Korkar eru ágætir, ef notaðir eru þegar _þarf_ að nota þá, ekki í svona chatting bull. Hana nú :) Hope there are no grudges… not intentional :)

Re: Af hverju ekki Bush?

í Deiglan fyrir 25 árum, 4 mánuðum
JediMLD: Það er aldeilis segi ég nú bara. Það eru góð rök hjá þér þarna inn á milli, en megnið af greininni er tölfræði, og getgátur. Þú segir að George W. Bush sé fordómafullur, en ég get ekki séð að þú sért það ekki. Vissulega er grunsamlegt hvernig fleiri fleiri atkvæði hurfu, og voru ekki talin, en ástæðan fyrir því er óljós. Ég er reyndar sammála þér með það að Bush sé ekki gott forsetaefni, og ég myndi frekar vilja sjá Gore við völd, en satt að segja, þá held ég að það skipti ekkert...

Re: Pokémon veldur enn deilum í Tyrklandi

í Deiglan fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Æji, ég vildi að Pokémon væri bannað hér á Íslandi. Þessir þættir eru algjört rugl, og ég held að þetta sé meira skaðandi en hrátt ofbeldi. Hvað eru þessir krakkar að gera? Þeir eru að þjálfa litlu sætu pokémonana til að berjast gegn hvor öðrum. Þetta er algjört _rugl_ og skaðandi fyrir ung börn. Niður með Pokémon.

Já, þess þarf.

í Deiglan fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Ég er sammála kennurum að því leitinu til að það þurfi að hækka laun þeirra. Vissulega. En öllu má ofgera. Eins og fólk er (réttilega) búið að benda á, þá vinna kennarar minna en annað fólk sem vinnur 9til5 vinnu. Þetta, gott fólk, er staðreynd. Og af hverju ættu þeir þá að fá jafn mikið borgað og hver annar sem vinnur 9til5 vinnu? Vegna þess að það er leiðinlegt að vera kennari? Ég stórefast um að þeim finnist það, því annars væru þeir ekki kennarar. Leiðinleg vinna, sem er illa borguð?...

Re: Reykjanesbrautin

í Deiglan fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Já. Þetta hefur verið í brennidepli stjórnmálamanna svo lengi sem ég man, og löngu tímabært að mótmæli hefjist. Kæri greinarhöfundur, ég er þér fyllilega sammála í því að ég sé ekki sammála þessum aðferðum sem notaðar eru. Ef verið er að mótmæla, á það ekki að koma niður á fólki sem að _þarf_ að komast eftir þessum vegi, heldur frekar þá að fara niður að ráðhúsi, og mótmæla þar fyrir utan. Þessar aðferðir eru allt of grófar. Annað sem mér hefur dottið í hug er lestakerfi, eða a.m.k. _ein_...

Re: Hver veit?

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Hvað með: Ekki hérna. ??<BR

Re: Hjálp Adsl vesen !!!!!!

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 4 mánuðum
fáðu þér linux<BR

Re: Doom 7 ára

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 4 mánuðum
7 ára? Nei það er nú eitthvað bull. Ég þekki sko tæknina á bakvið þetta… (just kidding) =]

Re: Eru Bandaríkjamenn búinn að gera sig að fíflum??

í Deiglan fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Ok. Hvað ertu að bulla otti? Ég er sammála því, að þetta er orðinn algjör skrípaleikur, en það er ekki að ástæðulausu. Kanadaforseti var tilkynntur daginn eftir, það er rétt, en munaði nokkur hundruð atkvæðum í tugmilljónmanna þjóð? Nei. Þessi deila er mjög skiljanleg. Gore (eðlilega) telur að brögð hafi verið í tafli með talningu atkvæða, og Bush myndi álykta hið sama ef að hann hefði verið undir í talningunni. Það er gjörsamlega nauðsynlegt að handtelja þetta, til þess að fá sem...

Re: Útlendingahatur

í Deiglan fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Ég er sammála þér að mörgu leiti, en það ber að varast fullyrðingar eins og þú setur fram. Bæði þú, og þjóðernissinnar gera þau mistök að fullyrða, án fullrar festu. Það eru margar hættur sem maður er að bjóða heim með því að hleypa hverjum sem er inn í landið, sem að hafa orðið raunverulegar í öllum löndum sem að hafa gert það. Því má álykta, að ef þetta heldur áfram að vera svona, verða til ýmis hverfi, þar sem að ákveðnir kynþættir hrúga sér saman. Einnig það sem fólk talar um þegar þeir...

Re: Re: Re: Re: Re: Ný möp í 1on1 á næsta skjálfta ?!?

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Nú, ég biðst þá afsökunar á þessum misskilningi down :) Þið hinir aftur á móti, ég skil ekki hvað þið sjáið athugavert við beatboxið. Það er sjarmur yfir því. Maður spilar það ekki eins og flest önnur maps, maður þarf að spila allt allt öðruvísi. Ég hef ekki tekið eftir því a.m.k. að það bjóði upp á of mikið control, og það sé hægt að flýja endalaust. Það er aldrei hægt að flýja endalaust, og sérstaklega ekki þar sem að það er railer í þessu borði. Vissulega hafið þið spilað það mikið, og...

Re: Ný möp í 1on1 á næsta skjálfta ?!?

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 4 mánuðum
Mér finnast þetta vera góðar tillögur, og ég er ánægður að fólk sé að spá í kortum sem spila á á skjálfta. Reyndar finnst mér vera algjör óþarfi að breyta staðsetningum þessara items í ztn3dm1, það er mjög gott map þegar. Mér finnst þurfa að bæta hvaða kort er hægt að spila á skjálfta, s.s. fleiri valmöguleika, og þá má kannski hver leikmaður neita 2svar? Just a thought…

Re: Til sölu!!!

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 4 mánuðum
We\<BR

Re: Matsölustaðir

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 5 mánuðum
Það skal strax leiðrétt, að American Style er ekki skyndibitastaður. En svo er annað mál hvar besti maturinn sé, well það er án efa á American Style, og er AS einnig mjög hentugur staður til fundarhalds (þegar það er hægt að fá sæti), fyrir þær sakir að það eru stór og góð borð, með þægilegum sætum, OG það er ókeypis refill á kókið, þannig að maður er alltaf með eitthvað að drekka :)

Re: Re: Re: Re: Re: Höfundur Ping er látinn :/

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 5 mánuðum
heyr heyr. =)

Re: Myndbönd mánaðarins.

í Kvikmyndir fyrir 25 árum, 5 mánuðum
Ok, what the hell is this? Eruði 10 ára gömul? Þið a.m.k. talið þannig. Tilgangur með þessari grein? Jah, ég veit ekki, ég sé hann ekki…enda er hann ábyggilega enginn. Ef þið ætlið að tala um kvikmyndir, please, taliði um þær, ekki koma með svona aumkunnarverðar fullyrðingar, eins og MANCHESTER ERU BESTIR!!! eða ARSENAL SÖKKA!!! … This is pathetic…no offence..

Re: Re: Re: Re: Höfundur Ping er látinn :/

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 5 mánuðum
Booger: true :/

Re: Re: Höfundur Ping er látinn :/

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 5 mánuðum
Það er nú leiðinlegt. Samt ekkert til að gera eitthvað fuzz útaf :) Þekkti hann aldrei :)

Re: Re: 100.000 notendur á Sega Net í Quake og öðru

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 5 mánuðum
OMG! Ég ráðlegg fólki að taka í burtu Save password.

Re: eitthvað sem p1mpar mega skoða

í Quake og Doom fyrir 25 árum, 5 mánuðum
Já, ég er sammála því að það megi prófa q3comp. Ég hef reyndar alltaf verið á móti q3comp, af því það er algjört osp wannabe :) Alltaf skrefinu á eftir. En ef að osp er hinsvegar ástæðan fyrir öllu þessu laggi, þá finnst mér mega skoða það hið snarasta.

Re: dvdzone.is - dúbíus?

í Kvikmyndir fyrir 25 árum, 5 mánuðum
Smegma: heh, ég hef ekkert heyrt um þetta fyrirtæki, og persónulega þykir mér dálítið einkennilegt að þú skulir treysta þeim fyrir kortanúmerinu þínu :) (sérstaklega þar sem að þessar myndir eru allar fáanlegar í BT :))
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok