Ég vil ekki velja einhverja stelpu af handarhófi þegar ég er á balli eða partýi. Ég er meira fyrir það að bjóða þeirri stelpu sem ég er mest hrifinn af í bíó eða á kaffihús eða eitthvað svoleiðis. Ég hef nokkrum sinnum talað við stelpu og boðið henni út en það hefur aldrei tekist að fá einhverja á stefnumót. Algengasta svarið sem maður fær er “kannski” eða “ég veit það ekki”. Ég tel að ég hafi útlitið með mér þannig að ég skil ekki af hverju þetta gengur aldrei upp. Er ég bara svona gamaldags að vilja bjóða stelpu út eða geng ég of hratt í hlutina? Eða er betra að byrja samband á einhvern annan hátt?