Það fer eftir því hvar þú býrð hvernig reglurnar eru en flest bæjarfélög eru komin með skráningarskyldu á hunda þannig að þú verður að skrá þá hjá bænum og borga leyfisgjald. Ef þú gerir það ekki, þá gerist í rauninni ekki neitt. Hins vegar ef einhver kvartar undan hundinum þínum og hundaeftirlitið mætir á staðinn, þá myndu þeir skrá hann hjá sér og líka ef hann sleppur og þeir ná honum, þá myndir þú þurfa að borga leyfisgjaldið + sekt.