Páll Magnússon varaþingmaður Framsóknarflokksins hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi um að kannað verði hvort fella megi niður eða lækka virðisaukaskatt á fötum og skófatnaði fyrir börn. Segir Páll í greinargerð með tillögunni að ætla megi að verslun með þessar vörur muni aukast hér á landi í kjölfarið, umsvif verslunar aukist og hún skili meiri hagnaði.

Páll leggur til að annars vegar verði metin áhrif þess að föt og skófatnaður fyrir börn beri engan virðisaukaskatt og hins vegar að föt og skófatnaður fyrir börn beri 14% virðisaukaskatt. Lagt verði mat á fjárhagslegt tap ríkissjóðs við þessar aðgerðir en einnig ávinning fyrir barnafjölskyldur. Einnig verði lagt mat á ávinning af slíkum aðgerðum fyrir verslun innan lands og í því efni sérstaklega litið til laga um þessi mál á Bretlandseyjum. Tekið af <a href="http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1001090 ">mbl.is</a>.

Loksins finnst mér eitthvað jákvætt koma fram á þingi til að draga úr jaðaráhrifum og mismunun innan skattkerfisins. Jaðaráhrif skattkerfisins bitni ekki síst á barnafólki sem iðulega þurfi í senn að koma sér upp húsnæði og greiða af námslánum og vinni af þeim sökum langan vinnudag. Með því að lækka eða afnema virðisaukaskatt af barnafatnaði væri með loksins komið til móts við barnafjölskyldur í landinu og tala nú ekki um barnmargar fjölskyldur. Mér finnst þetta virkilega gott mál og vona innilega að Páll komi þessu í gegnum þingið!

Kv. EstHe
Kv. EstHer