Hinar margrómuðu Tomahawk flugskeyti sem eiga stóran þátt í niðurrifi Bagdad eiga að vera bestu stýriflaugar sem nokkur her á að sögn BNA-manna eiga það soldið til að “villast” (að því virðist)

Ég hef verið að fylgjast grant með BBC til að heyra hvað hefur verið í gangi í þessu “frelsisstríði” Bandamanna og það virðist sem þessi frábæru flugskeyti hafi hitt eftirfarandi: Munaðarleisnigjahæli, háskóla, rútu fulla af óbreittum borgurum, ýmis íbúðarhverfi og já, síðast en ekki síst Íran!!!!!
(Þetta fyrsta var þó ásættanlegt, því 2-9 ára krakkar voru að plana hryðjuverkaárás á BNA!!!!!!!!!!)

En spurningin er, eru þetta mistök hjá bandamönnum eða eru þessum vopnum miðað að óbreittum íbúum ?

Miðað við allar fullyrðingarnar um að þetta séu fullkomnustu vopn í heimi og að engir óbreittir borgarar ættu að deyja, þá ættu þessir hlutir ekki að gerast!!!!

Sumir trúa sennilega ekki að bandamenn hafi sprengt upp munaðarleisingjahæli, en eftir að ég heyrði þetta á BBC skipti ég yfir á Al Jazeera þar sem ég sá myndir af nokkura mánaða barni sem bandamenn SPRENGDU HÖFUÐIÐ AF !!!!!!!!!! Og þetta eru ekki ýkjur !!!!!!

Þetta stríð bitnar mest á fólki sem bandamenn ætla að “frelsa”

Ég ætla að segja það aftur að þetta stríð er Viðbjóður sem á ekki að eiga sér stað í nútíma þjóðfélagi.
“Öreigar allra landa sameinist !!!!!!!”