Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Beautiful Lies..nei meinti Mind

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Enda engu við þetta að bæta

Re: Beautiful Lies..nei meinti Mind

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Kæri SBS, takk fyrir að leiða mig í sannleikann um heiminn, mér finnst eins og veröldin hafi umturnast við svar þitt.

Re: Komdu og sjáðu

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Takk fyrir ábendinguna. Best að reyna grafa þetta upp e-h staðar. Alltaf gaman að horfa á myndir sem eru áhrifamiklar myndir sem segja góða sögu og eru vel gerðar, í stað ótakmarkaðra dollara. kv. Lenin

Re: Golden Globes 2002 - úrslitin

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Frekar mikill Óskarsverðlauna fnykur af þessari mynd, A Beautiful Mind. Skemmtilegheit.

Re: Hugleiðingar um anarkisma

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Sæll, Já, þetta virðist, svona á heildina litið, engan vegin ganga upp. Anarkismi byggist, sýnist mér að minnsta kosti, að mestu leiti á ofurtrú á manninum og skynsemi hans. Löggan á t.d. ekki að hjálpa fólki, fólk á að hjálpa fólki. Löggur koma ekki í veg fyrir glæpi, ef samfélagið er anarkíst þá eru glæpir óþarfir. T.d. með skynseminni og allir eiga allt. En það eru auðvitað til mismunandi útfærslur á anarkismanum. Eitt sem margir klikka á, er að rugla saman Anarchy og svo Nihilism, held...

Re: pink floyd maggie

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Hehe, fattaði þetta ekki alveg strax. Afsakið. Maggie er auðvitað Margret Thatcher. Þetta er ádeila á Falklandseyja stríðið. Þá veistu það. kv. Lenin

Re: pink floyd maggie

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ætli þetta sé ekki bara mamma Roger Waters. The Post War Dream er allavega um pabba hans. Annars er ég ekki alveg viss.. Athyglisverð spurning engu að síður. -kv. Lenin

Re: Ég elska Hood

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Sæll Occupy, ég dl lögum með þeim af Audiogalaxy, ef þú finnur ekki eitthvað á AG, leita bara betur, kv. lenin

Re: 100 bestu rokk plötur allra tíma!!!!!!

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Þó ekki væri nema í 100. sæti, vildi ég sjá At Action Park með Shellac á listanum. Allavega ein af mínum uppáhalds rokk plötum. En rokk spannar náttúrulega svo vítt svið. Plötur í fyrsta og öðru sæti eru nánast eins og svart og hvítt. -kv. Lenin

Re: Kommúnismi

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Mér þykir þessa umræða vera á miklum villigötum.

Re: Huga(r)angur

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
BNA studdu Hussein í stríði gegn Íran, ekki til valda. Milosevic kom sér sjálfur til valda, enda hefur það ekki verið stefna BNA að koma kommúnistum til valda. Kúba var gullnáma, svipað dæmi og Las Vegas, áður en Batista var hrutt frá völdum. BNA studdu Castro alls ekki til valda. Staðreyndir sem ég vill að komi fram. Svo má benda á að Norðurbandalagið er alls ekki eitt við völd. Það eru held ég þrír aðilar sem eru stærstir í stjórninni. Man nú ekki alveg hvað þeir heita, en þess má geta að...

Re: The Critics' Choice Awards 2001

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Hvar sástu hana?

Re: Metallica

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Einhver ætti að kenna Lars Ulrich að tromma. Það er Metallica víti til varnaðar að Kirk Hammett kann á gítarinn sinn.

Re: Belle & Sebastian

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
If you're feeling sinister og Tigermilk eru flottustu plöturnar finnst mér. Fold your hands child, you walk like a peasant ollu mér miklum vonbrigðum. Enda erfitt að senda alltaf frá sér snilldarverk…menn misstíga sig stundum. En eflaust eru margir ósammála mér um þessa plötu.

Re: Spy Game

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Sælir, fór á þessa mynd áðan. Fannst hún þónokkuð fín. Hröð á köflum, töff kvikmyndataka og jafnvel betri klipping. Tony Scott stjórnar þessu fínni hendi. Þráðurinn er líka ágætur. Leikararnir standa fyrir sínu. Fannst hún samt aðeins detta niður á köflum, en ekkert alvarlega. gef henni *** af ***** ps. er byrjað/búið að sýna hana á Íslandi?

Re: Kommúnismi

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Nú er nóg komið! Hef ég því ákveðið að koma með beinar tilvitnarnir í sjálf Kommúnistaávarpið, sem gefið var út í febrúar 1848. Bls. 67: Það er ekki einkenni kommúnismans að hann afnemi eignarréttinn yfirleitt, heldur hitt, að hann afnemur hinn borgaralega séreignarrétt. En hinn borgaralegi séreignarréttur nútímans er síðasta og fullkomnasta tilveruform framleiðslu og eignahagsskipanar, er hvílir á stéttaandstæðum, á stéttaarðráni. Í þessum skilningi geta kommúnistar því orðað kenningu sína...

Re: Nýtt útlit hugi.is

í Vefsíðugerð fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Hvað er þetta með enskuna? Íslenska er okkar mál. En þetta er bara preview, ekki satt?

Re: Lögreglan í Hafnarfirði full af geðsjúklingum?

í Deiglan fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Það verður áhugavert að fylgjast með framvindu þessa máls. Ætli hæstivirtur dómsmálaráðherra mæti ekki í kappræður í sjónvarpinu, verði töluð í kaf eins og venjulega, tuðar svo í stólnum sínum:“Ég vissi ekki að þetta ætti að vera eintal.” En ætli yfirvaldið verði nokkuð lengi að þagga niðrí þessu máli.

Re: Handtaka í Hafnarfirði.

í Deiglan fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Þeim sem Guð gaf ekki vit, gaf hann kylfu og hatt.

Re: The Catcher in the Rye

í Bækur fyrir 24 árum, 4 mánuðum
Var ekki morðingi Lennons með þessa bók í höndunum frekar heldur en Lennon sjálfur? Eða allavega innan í jakkavasanum. Annars veit fólk voða lítið um Salinger sjálfan, algerlega búinn að loka sig frá samfélaginu. Mjög fín bók, phonies..

Re: Krónan í rugli og Davíð líka!

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 5 mánuðum
Usss, ekki tala svona hátt. Það má enginn vita að það séu vandamál í stjórnun Davíðs. Ussss….

Re: Rammstein

í Rokk fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Rammstein er meira svona sirkus atriði heldur en almennilegir tónlistarmenn. Maður sér þá, hah, sniðugir þessir strákar. Annars spurði ég nú þýskan vin minn um þetta band, hafði hann á orði að annað hvort nýnasistar eða hreinir fávitar hlustuðu á þetta. Það finnst mér ekki ósennilegt að sé sannleikurinn… En hver hefur sinn smekk, ekki satt?

Re: Evran til Íslands

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Ertu gjörsamlega að tapa þér hr. ViceRoy. Trúir því þú því virkilega að við mættum nokkurn tíman “grúska” í olíumiðum Norðmanna, þegar þeir færa íslenska sjómenn til hafnar fyrir að fiska í Smugunni? Annars veit ég nú ekki hvað Norðmenn koma málinu við, þeir eru ekki á leiðinni í ESB, hafa tvisvar fellt það í þjóðaratkvæðagreiðslu, ef mér skjátlast ekki. Þar sem Ísland telst vera ríkt land (fimmta ríkasta land í heimi), væru útgjöldin mun hærri en innkoman. Andmælir því einhver?

Re: Evran til Íslands

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Nú telst ég seint fjármálafróður maður, en ég heimta samt rök. Auðvitað er krónan lág, en afhverju yrði allt endilega betra ef Evrur kæmi hingað? Peningar, hvaða nafn svosem þeir bera, eru auðvitað bara pappír, með ákv. gildi á bakvið sig. Er það ekki rétt hjá mér? Vill ég þá fá útskýringu á því hvað í raun breytist ef við gengum í Myntbandalag Evrópu og tækjum upp Evrur. ———– May nothing but happiness come through your door.

Re: Hvað blívar? Nýliðun & stöðnun.

í Músík almennt fyrir 24 árum, 6 mánuðum
Já, ég notaði þessa tækni. Virkaði mjög vel. En í nýju útgáfunni hefur X unum fjölgað mjög mikið, eða svo sýnist mér allavega.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok